Skólinn átti 50 ára afmæli föstudaginn 11. september og af því tilefni var boðið upp á stórtónleika í Hljómahöll. Þar kom fram fjöldi tónlistarmanna sem flestir eru fyrrverandi nemendur skólans. Vel var mætt og var mikil stemning og gleði í salnum og ekki síður á sviðinu þetta kvöld.
Það voru þeir Hallbjörn Valgeir Rúnarsson, betur þekktur sem Halli Valli, og Ingi Þór Ingibergsson sem kynntu dagskrána en þeir eru auðvitað báðir fyrrverandi nemendur FS. Þeir fóru á kostum og héldu uppi stemningu á meðan stillt var upp fyrir næsta atriði.
Það var Guðjón Þorgils sem hóf tónleikana en hann sigraði í Söngkeppni framhaldsskólanna í vor og varð þar með fyrsti fulltrúi FS til að sigra keppnina. Síðan komu þeir Valdimar Guðmundsson og Ásgeir Aðalsteinsson úr hljómsveitinni Valdimar og þá Sigurður Guðmundsson. Þá var komið að hverri hljómsveitinni á eftir annarri þar sem fyrrverandi FS-ingar eru í lykilhlutverkum og jafnvel öllum. Þetta voru Klassart, Demo, Heiða Eiríks og Gleðilegt fokking ár, Hinir guðdómlegu Neanderdalsmenn, Deep Jimi/Pandora og það var síðan Kolrassa krókríðandi sem lauk tónleikunum eins og þeim einum er lagið.
Það er óhætt að segja að tónleikarnir hafi heppnast frábærlega og gestir skemmtu sér vel og ekki síður þeir sem tróðu upp. Við þökkum tónleikagestum fyrir komuna og tónlistarfólkinu fyrir þeirra framlag.
Í myndasafninu er myndapakki frá tónleikunum.



