Frá Degi umburðarlyndis og baráttu gegn einelti

Miðvikudaginn 11. nóvember var haldið upp á Dag gegn einelti og Dag umburðarlyndis í skólanum. Þessir dagar eru reyndar 8. og 16. nóvember en ákveðið var að sameina þá í gær.
Í kennslustund rétt fyrir hádegi ræddu kennarar og nemendur um jákvæð samskipti og umburðarlyndi. Nemendur skrifuðu svo alls konar jákvæð skilaboð á límmiða sem voru hengdir á kærleikstré sem búið var að gróðursetja á sal.

Í hádeginu var svo stutt dagskrá á sal þar sem fulltrúar nemendafélagsins fluttu hugleiðingar um vináttu og umburðarlyndi. Síðan sungu allir saman lagið Lífið er yndislegt og dagskránni lauk svo með því að boðið var upp á skúffuköku.

Þar með lauk þessum degi en kærleikstréð lifir áfram á sal og þar getur fólk fengið jákvætt veganesti í verkefni dagsins.

Þess má geta að Dagur umburðarlyndis er á vegum UNESCO en skólinn er einmitt UNESCO-skóli.
 
Í myndasafninu eru nokkrar myndir frá deginum.