Fab Lab Suðurnes opnar 23. febrúar

Fab Lab Suðurnes nýsköpunarsmiðjan verður opnuð með formlegum hætti föstudaginn 23. febrúar á milli kl. 14:00 til 16:00. Dagskráin hefst með ávarpi, starfsemin verður kynnt og verkefni sem gerð hafa verið í Fab Lab smiðjunni verða sýnd. Boðið verður upp á kaffiveitingar. Við hvetjum áhugasama til að líta við og kynna sér aðstöðuna og það sem Fab Lab hefur upp á að bjóða.