Dregið úr edrúpottinum

Í hádeginu mánudaginn 7. nóvember var dregið úr edrúpottinum í annað sinn í vetur. Nemendur hafa kost á að blása í áfengismæli á böllum og þeir sem það gera fara í pott. Dregið er úr pottinum eftir hvert ball og eru glæsilegir vinningar í boði. Vinningar að þessu sinni voru meðal annars 5.000 króna debetkort, gjafabréf í brunch fyrir tvo hjá The Bridge Marriott, gjafabréf á Domino´s og gjafabréf í ísbúð Huppu.