Birting einkunna og próf- og verkefnasýning

Birting einkunna og próf- og verkefnasýning verða föstudaginn 16. desember. Opnað verður fyrir einkunnir í Innu um kl. 11:00. Hægt verður að skoða próf og verkefni kl. 11:30-12:30 þennan dag. Kennarar verða í stofum og þar geta nemendur skoðað sín gögn og rætt við kennara. Nemendur eru hvattir til að mæta, skoða próf og verkefni og ræða við kennara sína.