Appelsínugulir unnu Starfshlaupið

Starfshlaup Fjölbrautaskóla Suðurnesja fór fram föstudaginn 8. apríl. Starfshlaupið fór nú fram í 26. sinn en það hóf göngu sína árið 1994. Hlaupið féll niður tvö síðustu ár vegna samkomutakmarkana og því var mikil spenna fyrir keppninni í ár.

Í Starfshlaupinu skipta allir nemendur skólans sér niður í fjögur lið sem hvert hefur sinn einkennislit. Fyrirliðar hvers liðs koma svo úr hópi útskriftarnemenda. Í hlaupinu reyna liðin með sér í flestum námsgreinum sem kenndar eru við skólann, fjölmörgum íþróttagreinum og ýmis konar þrautum og leikjum. Markmiðið er að ljúka keppninni á sem stystum tíma en liðin fá einnig stig fyrir frammistöðuna í hverri keppnisgrein.

Keppnin var æsispennandi í ár en að lokum var það Appelsínugula liðið sem fór með sigur af hólmi. Fyrirliðar liðsins, Eygló Nanna, Guðjón og Gabríel Már, tóku því við Starfshlaupsbikarnum sem Guðlaug Pálsdóttir skólameistari afhenti. Að venju fékk sigurliðið pizzuveislu að launum og að því loknu héldu nemendur og starfsfólk í langþráð páskafrí eftir skemmtilegan dag.

Hér er veglegt myndasafn frá Starfshlaupinu.