Anita Ýrr fékk styrk úr Afreks- og hvatningarsjóði HÍ

Fyrrverandi nemandi okkar, Anita Ýrr Taylor, var ein 34 nemenda Háskólans sem fengu styrk úr Afreks- og hvatningarsjóði stúdenta Háskóla Íslands. Styrkirnir eru veittir nýnemum við Háskóla Íslands sem náð hafa framúrskarandi árangri í námi til stúdentsprófs og jafnframt látið til sín taka á öðrum sviðum, svo sem í félagsstörfum í framhaldsskóla eða listum og íþróttum. Styrkupphæð hvers og eins nemur 375 þúsund krónum og heildarupphæð styrkjanna er því tæpar 13 milljónir króna.

Anita Ýrr varð stúdent frá Fjölbrautaskóla Suðurnesja vorið 2023 af fjölgreinabraut og var þá annar tveggja útskriftarnemenda með hæstu einkunn á stúdentsprófi. Hún er að hefja nám í landfræði við Háskólann. Á myndinni með fréttinni er Anita ásamt Jóni Atla Benediktssyni, rektor Háskóla Íslands, við afhendingu styrkjanna. Myndirnar eru frá HÍ.

Við óskum Anitu til hamingju með viðurkenninguna og góðs gengis í sínu námi.