Afmæliskaka á sal á 50 ára afmælinu

Föstudaginn 11. september hélt skólinn upp á 50 ára afmæli en hann var settur í fyrsta sinn á þessum degi árið 1976. Í tilefni dagsins var boðið upp á tertu merkta skólanum í löngu frímínútunum. Fyrst sungu allir afmælissönginn til heiðurs FS og að því loknu gæddu nemendur sér á tertusneið. Ekki dugðu færri en 18 veglegar tertur til að allir fengju sneið og var ekki annað að sjá en fólk kynni vel að meta.

Í myndasafninu eru myndir frá afmælisveislunni.