Afmælisgróðursetning í Vatnsholti

Þriðjudaginn 8. september fór hópur nemenda í Vatnsholt á svæði Skógræktarfélags Suðurnesja og gróðursetti þar 50 plöntur í tilefni afmælis skólans. Verkefnið var hluti af afmælisviku en skólinn verður 50 ára föstudaginn 11. september. Það voru nemendur og kennarar á starfsbraut sem tóku verkið að sér og gekk það fljótt fyrir sig í blíðskaparveðri. Þau Kristján og Sigríður frá Reykjanesbæ mættu á svæðið og leiðbeindu hópnum. Vonandi eiga þessar afmælisplöntur svo eftir að vaxa og dafna i framtíðinni eins og skólinn.

Í myndasafninu eru nokkrar myndir frá gróðursetningunni.