Áfangakynning á sal

Fimmtudaginn 2. október var kynning á valáföngum á sal. Þar kynntu kennarar í ýmsum námsgreinum þá valáfanga sem nemendur geta tekið á næstu önn. Þar má nefna áfanga í sálfræði, þýsku, textíl, raungreinum, tölvugreinum, listgreinum og einnig Fab Lab o.fl. Nemendur voru duglegir að spyrja og ræða við kennara. Nemendur hafa örugglega fundið spennandi valáfanga til að velja á næstu önn og ekki síður áfanga sem henta sem undirbúningur fyrir frekara nám.

Þetta er í þriðja sinn sem boðið er upp á kynningu á valáföngum á sal og er þetta gott tækifæri fyrir nemendur að kynna sér þá fjölbreyttu valáfanga sem eru í boði. Valáfangarnir eru svo líka kynntir á veggjum og auglýsingaskjám á meðan valið stendur yfir.

Í myndasafninu eru nokkrar myndir frá valkynningunni.