MSTY4LO01(BA) - Meistaranám - Stýringar, loftstýringar
Undanfari : Sveinspróf í rafvirkjun, rafvélavirkjun eða rafveituvirkjun
Í boði
: Haust
Lýsing
Áfangar í pakkavali rafvirkjunar í iðnmeistaranámi eru kenndir hjá Rafmennt.
Viðfangsefni áfangans eru loftstýringar. Nemendur lesa úr algengustu loftstýritáknum, læra að hanna einföld loftstýrikerfi, tengja loftstýrikerfi og finna bilanir í þeim. Þá er farið yfir helstu íhluti loftstýrikerfa, virkni þeirra og teiknitákn. Auk þess hanna nemendur loftstýrikerfi, tengja þau og prófa.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- loftstýrikerfum, íhlutum þeirra og virkni
- helstu loftstýritáknum
- hönnun einfaldra loftstýrikerfa, tengingu þeirra og prófunum
- hvernig tengja á loftstýrikerfi
- bilanagreiningu og helstu bilunum í loftstýrikerfum
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- teikna og hanna loftstýrikerfi
- nýta við það loftstýritákn
- tengja loftstýrikerfi
- prófa loftstýrikerfi og finna helstu bilanir í þeim
Nemandi skal geta hagnýtt þá þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- hagnýta þekkingu sína til að gera flæðirit til að leysa stýriverkefni
- tjá sig um og leiðbeina öðrum um eiginleika og tengingu loftstýrikerfa
- nýta sérhæfða þekkingu sína til að hanna, prófa og bilanagreina loftstýrikerfi
- sýna frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum sem tengjast loftstýrikerfum
- geta nýtt sér þekkingu sína og leikni á gagnrýnin og uppbyggilegan hátt
Grunnþættir menntunar
Læsi, tjáning og samskipti um tölur og upplýsingar:
- Þjálfa nemendur í að greina upplýsingar.
- Þjálfa framsetningu og túlkun á tölulegum upplýsingum.
Námshæfni:
- Nemendur þjálfist í skipulögðum vinnubrögðum og læri að setja sér markmið.
- Nemendur læri að leita sér upplýsinga um þau málefni sem unnið er með.
- Nemendur læri að tjá sig og rökstyðja skoðanir sínar t.d. með kynningum á verkefnum.
- Styrkleikar hvers nemanda fái að njóta sín t.d. í hópavinnu.
- Nemendur læri að bera ábyrgð á námi sínu og skipuleggja sig. Þeir geti valið sér verkefni og skipulagt í samráði við kennara.
Skapandi hugsun og hagnýting þekkingar:
- Með mikilli og fjölbreyttri verkefnavinnu þurfa nemendur að vera skapandi og koma með nýjar og ferskar hugmyndir.
- Nemendur tileinki sér að vinna bæði í hópi og sjálfstætt að verkefnum þar sem unnið er að stofnun eigin fyrirtækis.
- Verkefni skulu skarast þvert á áfanga og tengja þannig saman í lokaafurð þekkingu frá mörgum fögum.
Jafnrétti:
- Framfylgja skal jafnréttisstefnu og jafnréttisáætlun skólans.
- Beita skal fjölbreyttu námsmati og kennsluaðferðum.
- Allir skulu eiga jafna möguleika á að rækta hæfileika sína á jafnréttisgrundvelli.
Menntun til sjálfbærni:
- Nemendur skilji mikilvægi þess að skapa samábyrgt samfélag.
- Nemendur geti tekist á um álitamál og ástundi lýðræðisleg vinnubrögð.
- Nemendum þekki og virði umhverfi sitt og auðlindir þess.
- Framfylgt skal umhverfisstefnu skólans.
Læsi, tjáning og samskipti á erlendum tungumálum:
- Nemendur eru hvattir til að afla sér upplýsinga á erlendum vefsíðum í fræðibókum og fleiru.
- Nemendur kynni sér hvernig leiðbeina má og kynna verklag og reglur fyrir erlendum starfsmönnum í íslenskum iðnfyrirtækjum.
Heilbrigði:
- Nemendur tileinki sér rétta líkamsbeitingu miðað við aðstæður.
- Nemendur skulu hvattir til að standa upp frá vinnu sinni og skipta um stöðu og umhverfi.
Læsi, tjáning og samskipti á íslensku:
- Nemendur kynna verkefni sín fyrir samnemendum og kennurum.
- Nemendur skili ritgerðarvinnu og verkefnum.
- Nemendur efli með sér skilning á mikilvægi góðrar málvitundar í tengslum við textavinnslu og fleira.
- Nemendur taki þátt í hópavinnu þar sem reynir á samskipti og tjáningu.
Lýðræði og mannréttindi:
- Áhersla er lögð á að allir nemendur fái að tjá sig og segja sína skoðun.
- Í hópverkefnum reynir mikið á samvinnu og nemendur læra að taka tillit til mismunandi skoðana.
- Nemendur læri að bera virðingu fyrir eigin störfum og annarra.