MSTY4IT04(BA) - Meistaranám - Stýringar, iðntölvur 2
Undanfari : Sveinspróf í rafvirkjun, rafvélavirkjun eða rafveituvirkju
Í boði
: Haust
Lýsing
Áfangar í pakkavali rafvirkjunar í iðnmeistaranámi eru kenndir hjá Rafmennt.
Í áfanganum fá nemendur haldgóða framhaldsþekkingu á iðntölvum og búnaði þeim tengdum. Viðfangsefnin eru gerð flæðirita við lausn stýriverkefna og færslu flæðirita í skjámyndir. Þá er fjallað um stöðluð hliðræn merki og forritun þeirra, farið í reikniaðgerðir og forritun í tvíundarorðum til túlkunar á skjámyndum og í gagnagrunna. Flæðirit og forrit eru gerð eftir lýsingum, slegin inn og prófuð í iðntölvum tengdum hermum. Einnig eru gerð flæðirit og forrit þar sem fram koma bæði stafræn og hliðræn merki og þau prófuð í iðntölvum tengdum hermum. Farið er sérstaklega í hugbúnað sem gerir kleift að nota PC tölvu sem eftirlits- og stjórnstöð við iðnstýringar. Þátttakendur gera skjámyndir sem sýna feril vélstýringar á myndrænan hátt og tengja saman iðnstýringu og PC tölvu. Kynntir eru notkunarmöguleikar skráningar í gagnagrunna.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- PLC stýringum
- iðntölvum og búnaði þeim tengdum
- notkun flæðirita, færslu flæðirita í forrit og notkun þeirra við gerð skjámynda
- því að tileinka sér möguleika á skráningum upplýsinga (tenda) í gagnagrunn
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- beita kerfisbundnum aðferðum við lausn stýriverkefna
- nota og gera flæðirit
- hanna og forrita smærri PLC stýringar og færa þau í gerð skjámynda
- forrita flóknari verkefni þar sem blandað er saman stafrænum og hliðrænum merkjum
Nemandi skal geta hagnýtt þá þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- gera flæðirit til að leysa skjámyndaverkefni
- gera forrit þar sem fram koma bæði stafræn og hliðræn merki
- nýta sérhæfða þekkingu sína til að gera flæðirit og forrit
- hagnýta sér prófanir í iðntölvum tengdum hermum og tengsl við skjámyndir
- geta nýtt sér þekkingu sína og leikni á gagnrýnin og uppbyggilegan hátt
Grunnþættir menntunar
Læsi, tjáning og samskipti um tölur og upplýsingar:
- Þjálfa nemendur í að greina upplýsingar.
- Þjálfa framsetningu og túlkun á tölulegum upplýsingum.
Námshæfni:
- Nemendur þjálfist í skipulögðum vinnubrögðum og læri að setja sér markmið.
- Nemendur læri að leita sér upplýsinga um þau málefni sem unnið er með.
- Nemendur læri að tjá sig og rökstyðja skoðanir sínar t.d. með kynningum á verkefnum.
- Styrkleikar hvers nemanda fái að njóta sín t.d. í hópavinnu.
- Nemendur læri að bera ábyrgð á námi sínu og skipuleggja sig. Þeir geti valið sér verkefni og skipulagt í samráði við kennara.
Skapandi hugsun og hagnýting þekkingar:
- Með mikilli og fjölbreyttri verkefnavinnu þurfa nemendur að vera skapandi og koma með nýjar og ferskar hugmyndir.
- Nemendur tileinki sér að vinna bæði í hópi og sjálfstætt að verkefnum þar sem unnið er að stofnun eigin fyrirtækis.
- Verkefni skulu skarast þvert á áfanga og tengja þannig saman í lokaafurð þekkingu frá mörgum fögum.
Jafnrétti:
- Framfylgja skal jafnréttisstefnu og jafnréttisáætlun skólans.
- Beita skal fjölbreyttu námsmati og kennsluaðferðum.
- Allir skulu eiga jafna möguleika á að rækta hæfileika sína á jafnréttisgrundvelli.
Menntun til sjálfbærni:
- Nemendur skilji mikilvægi þess að skapa samábyrgt samfélag.
- Nemendur geti tekist á um álitamál og ástundi lýðræðisleg vinnubrögð.
- Nemendum þekki og virði umhverfi sitt og auðlindir þess.
- Framfylgt skal umhverfisstefnu skólans.
Læsi, tjáning og samskipti á erlendum tungumálum:
- Nemendur eru hvattir til að afla sér upplýsinga á erlendum vefsíðum í fræðibókum og fleiru.
- Nemendur kynni sér hvernig leiðbeina má og kynna verklag og reglur fyrir erlendum starfsmönnum í íslenskum iðnfyrirtækjum.
Heilbrigði:
- Nemendur tileinki sér rétta líkamsbeitingu miðað við aðstæður.
- Nemendur skulu hvattir til að standa upp frá vinnu sinni og skipta um stöðu og umhverfi.
Læsi, tjáning og samskipti á íslensku:
- Nemendur kynna verkefni sín fyrir samnemendum og kennurum.
- Nemendur skili ritgerðarvinnu og verkefnum.
- Nemendur efli með sér skilning á mikilvægi góðrar málvitundar í tengslum við textavinnslu og fleira.
- Nemendur taki þátt í hópavinnu þar sem reynir á samskipti og tjáningu.
Lýðræði og mannréttindi:
- Áhersla er lögð á að allir nemendur fái að tjá sig og segja sína skoðun.
- Í hópverkefnum reynir mikið á samvinnu og nemendur læra að taka tillit til mismunandi skoðana.
- Nemendur læri að bera virðingu fyrir eigin störfum og annarra.