MSSF4MS02(AA) - Meistaranám - Stofnun og stefnumótun fyrirtækja
Undanfari : Sveinspróf
Í boði
: Haust
Lýsing
Nemendur læra um að stofna og reka fyrirtæki á eigin fagsviði eða ef nemandi er með draum í maganum gefst færi á að vinna með það. Fjallað er um helstu kenningar og þá hugmyndafræði sem stefnumótun byggir á með áherslu á rekstur smærri fyrirtæki iðnaðarmanna/kvenna/kvár. Farið er yfir nokkrar aðferðir og aðferðafræði við greiningu og undirbúning stefnumótunar og mismunandi leiðir fyrirtækja til að ná og viðhalda samkeppnisforskoti. Fjallað um mikilvæga þætti stefnumótunar og kynnt nokkur einföld stefnumótunarlíkön sem henta smærri fyrirtækjum. Meðal nokkurra heppilegra verkfæra sem fjallað er um má nefna fimm krafta líkanið og líkan um samkeppnisstefnur, PESTEL greiningar og SWOT greiningar. Nemendur spreyta sig sérstaklega við stefnumótun í markaðs- og sölumálum og vinna markaðs- og söluáætlun fyrir stofnun fyrirtækis (eða draumafyrirtæki eða umbreytingu fyrirtækis). Síðan vinna nemendur viðskiptaáætlun fyrir stofnun fyrirtækis í eigin iðngrein (eða draumafyrirtæki/umbreytingu fyrirtækis). Þá er fjallað um fjármögnun viðskiptahugmynda og mismunandi rekstrarform. Loks er fjallað um hin ýmsu leyfi sem þarf til atvinnurekstrar.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- helstu aðferðum við gerð viðskiptaáætlana
- helstu rekstrarformum fyrirtækja og samþykktum við stofnun þeirra
- leyfum sem þarf að útvega við stofnun fyrirtækis
- helstu leiðum til fjármögnunar nýs fyrirtækis og mögulegum stuðningi við stofnun þess
- rekstrarformum og stefnumótun íslenskra iðnfyrirtækja á sínu sérsviði
- reglum um öryggismál í eigin rekstri
- grænu bókhaldi
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- gera fjárhagsáætlanir
- beita reglum um skattalegt umhverfi fyrirtækja
Nemandi skal geta hagnýtt þá þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- móta stefnu fyrir fyrirtæki sitt og rökstyðja val sitt á aðferðum og verklagi
- taka þátt í umræðum og skoðanaskiptum um stofnun og þróun fyrirtækis í iðngrein sinni
- beita þekkingu sinni í stjórnun á raunveruleg dæmi og geta rökstutt úrlausn sína
- meta hvernig ytra umhverfi hefur áhrif á störf stjórnanda og árangur fyrirtækis
Grunnþættir menntunar
Læsi, tjáning og samskipti um tölur og upplýsingar:
- Þjálfa nemendur í að greina upplýsingar.
- Þjálfa framsetningu og túlkun á tölulegum upplýsingum.
Námshæfni:
- Nemendur þjálfist í skipulögðum vinnubrögðum og læri að setja sér markmið.
- Nemendur læri að leita sér upplýsinga um þau málefni sem unnið er með.
- Nemendur læri að tjá sig og rökstyðja skoðanir sínar t.d. með kynningum á verkefnum.
- Styrkleikar hvers nemanda fái að njóta sín t.d. í hópavinnu.
- Nemendur læri að bera ábyrgð á námi sínu og skipuleggja sig. Þeir geti valið sér verkefni og skipulagt í samráði við kennara.
Skapandi hugsun og hagnýting þekkingar:
- Með mikilli og fjölbreyttri verkefnavinnu þurfa nemendur að vera skapandi og koma með nýjar og ferskar hugmyndir.
- Nemendur tileinki sér að vinna bæði í hópi og sjálfstætt að verkefnum þar sem unnið er að stofnun eigin fyrirtækis.
- Verkefni skulu skarast þvert á áfanga og tengja þannig saman í lokaafurð þekkingu frá mörgum fögum.
Jafnrétti:
- Framfylgja skal jafnréttisstefnu og jafnréttisáætlun skólans.
- Beita skal fjölbreyttu námsmati og kennsluaðferðum.
- Allir skulu eiga jafna möguleika á að rækta hæfileika sína á jafnréttisgrundvelli.
Menntun til sjálfbærni:
- Nemendur skilji mikilvægi þess að skapa samábyrgt samfélag.
- Nemendur geti tekist á um álitamál og ástundi lýðræðisleg vinnubrögð.
- Nemendum þekki og virði umhverfi sitt og auðlindir þess.
- Framfylgt skal umhverfisstefnu skólans.
Læsi, tjáning og samskipti á erlendum tungumálum:
- Nemendur eru hvattir til að afla sér upplýsinga á erlendum vefsíðum í fræðibókum og fleiru.
- Nemendur kynni sér hvernig leiðbeina má og kynna verklag og reglur fyrir erlendum starfsmönnum í íslenskum iðnfyrirtækjum.
Heilbrigði:
- Nemendur tileinki sér rétta líkamsbeitingu miðað við aðstæður.
- Nemendur skulu hvattir til að standa upp frá vinnu sinni og skipta um stöðu og umhverfi.
Læsi, tjáning og samskipti á íslensku:
- Nemendur kynna verkefni sín fyrir samnemendum og kennurum.
- Nemendur skili ritgerðarvinnu og verkefnum.
- Nemendur efli með sér skilning á mikilvægi góðrar málvitundar í tengslum við textavinnslu og fleira.
- Nemendur taki þátt í hópavinnu þar sem reynir á samskipti og tjáningu.
Lýðræði og mannréttindi:
- Áhersla er lögð á að allir nemendur fái að tjá sig og segja sína skoðun.
- Í hópverkefnum reynir mikið á samvinnu og nemendur læra að taka tillit til mismunandi skoðana.
- Nemendur læri að bera virðingu fyrir eigin störfum og annarra.