MSÖL4MS02(AA) - Meistaranám - Sölu- og markaðsmál

Undanfari : Sveinsprof
Í boði : Haust

Lýsing

Fjallað er um grunnþætti markaðsstarfs og greiningu markaðstækifæra. Tilboð til viðskiptavina, stýring og framkvæmd markaðsþátta. Farið verður yfir markaðs og sölumál í rekstri fyrirtækja og helstu hugtök markaðsfræða. Einnig verður farið yfir gerð markaðsáætlana ásamt því að þarfir og kaupvenjur neytenda eru greindar. Þá verður einnig farið í ímyndarmál fyrirtækja og markaðssetningu þjónustu.


Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • helstu hugtökum markaðsfræða
  • helstu gerðum markaðsáætlana
  • helstu atriðum varðandi sölutækni
  • markaðs-, sölumálum og þjónustu í rekstri fyrirtækja  


Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • greina markaðsaðstæður og gera einfalda markaðsáætlun fyrir fyrirtæki sitt
  • setja fram markmið og stefnu fyrir þjónustu í fyrirtæki sínu
  • greina þarfir og kaupvenjur neytenda
  • útbúa kynningargögn 


Nemandi skal geta hagnýtt þá þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • gera viðskiptaáætlun
  • gera markaðsáætlun og undirbúa kynningar 

 

Grunnþættir menntunar

Læsi, tjáning og samskipti um tölur og upplýsingar:

  • Þjálfa nemendur í að greina upplýsingar.
  • Þjálfa framsetningu og túlkun á tölulegum upplýsingum.


Námshæfni:

  • Nemendur þjálfist í skipulögðum vinnubrögðum og læri að setja sér markmið.
  • Nemendur læri að leita sér upplýsinga um þau málefni sem unnið er með.
  • Nemendur læri að tjá sig og rökstyðja skoðanir sínar t.d. með kynningum á verkefnum.
  • Styrkleikar hvers nemanda fái að njóta sín t.d. í hópavinnu.
  • Nemendur læri að bera ábyrgð á námi sínu og skipuleggja sig. Þeir geti valið sér verkefni og skipulagt í samráði við kennara.


Skapandi hugsun og hagnýting þekkingar:

  • Með mikilli og fjölbreyttri verkefnavinnu þurfa nemendur að vera skapandi og koma með nýjar og ferskar hugmyndir.
  • Nemendur tileinki sér að vinna bæði í hópi og sjálfstætt að verkefnum þar sem unnið er að stofnun eigin fyrirtækis.
  • Verkefni skulu skarast þvert á áfanga og tengja þannig saman í lokaafurð þekkingu frá mörgum fögum.


Jafnrétti:

  • Framfylgja skal jafnréttisstefnu og jafnréttisáætlun skólans.
  • Beita skal fjölbreyttu námsmati og kennsluaðferðum.
  • Allir skulu eiga jafna möguleika á að rækta hæfileika sína á jafnréttisgrundvelli.


Menntun til sjálfbærni:

  • Nemendur skilji mikilvægi þess að skapa samábyrgt samfélag.
  • Nemendur geti tekist á um álitamál og ástundi lýðræðisleg vinnubrögð.
  • Nemendum þekki og virði umhverfi sitt og auðlindir þess.
  • Framfylgt skal umhverfisstefnu skólans.

 

Læsi, tjáning og samskipti á erlendum tungumálum:

  • Nemendur eru hvattir til að afla sér upplýsinga á erlendum vefsíðum í fræðibókum og fleiru.
  • Nemendur kynni sér hvernig leiðbeina má og kynna verklag og reglur fyrir erlendum starfsmönnum í íslenskum iðnfyrirtækjum.

 

Heilbrigði:

  • Nemendur tileinki sér rétta líkamsbeitingu miðað við aðstæður.
  • Nemendur skulu hvattir til að standa upp frá vinnu sinni og skipta um stöðu og umhverfi.

 

Læsi, tjáning og samskipti á íslensku:

  • Nemendur kynna verkefni sín fyrir samnemendum og kennurum.
  • Nemendur skili ritgerðarvinnu og verkefnum.
  • Nemendur efli með sér skilning á mikilvægi góðrar málvitundar í tengslum við textavinnslu og fleira.
  • Nemendur taki þátt í hópavinnu þar sem reynir á samskipti og tjáningu.

 

Lýðræði og mannréttindi:

  • Áhersla er lögð á að allir nemendur fái að tjá sig og segja sína skoðun.
  • Í hópverkefnum reynir mikið á samvinnu og nemendur læra að taka tillit til mismunandi skoðana.
  • Nemendur læri að bera virðingu fyrir eigin störfum og annarra.