Lýsing
Áfangar í pakkavali rafvirkjunar í iðnmeistaranámi eru kenndir hjá Rafmennt.
Til grundvallar í náminu eru þeir staðlar sem gilda um raflagnir og rafbúnað hverju sinni og leiðbeiningar sem með þeim fylgja. Í áfanganum auka nemendur þekkingu sína á raforkudreifikerfinu og einstökum hlutum þess, kynnast stöðlum og reglugerðum sem lúta að störfum rafiðnaðarmanna, læra að þekkja aðferðir til að verjast tjóni sem rafmagn getur haft á líf, heilsu og eignir manna, læra að gera prófanir og úttektir á veitukerfum, læra að annast skýrslugerð og skjalavörslu vegna prófana og úttekta á veitukerfum. Fjallað er um sögu raforkuflutnings, uppbyggingu veitukerfa, jafngildismyndir (TN-, TT-, og IT- kerfi). Kynntar eru reglugerðir og staðlar sem fjalla um veitukerfi og tæknilega tengiskilmála rafveitna. Fjallað er um orkuflutning, álagsstrauma, spennuföll og afltap í veitukerfum. Útskýrð er myndun og áhrif yfirstrauma, bilanastrauma og snertispennu. Fjallað er ítarlega um allar algengustu gerðir yfirstraumsvarna og eiginleika þeirra svo og aðferðir og búnað til varnar of hárri snertispennu. Farið er í útreikninga á skammhlaupsstraumum. Gerð er grein fyrir helstu öryggisráðstöfunum við vinnu (viðhald) á veitum. Fjallað er um úttektir, prófanir og mælingar á veitum. Æfð er notkun sérhæfðra mælitækja. Gerðar eru skýrslur um niðurstöður úttekta og útfylltar tilkynningar. Fjallað er um vörslu skjala (teikningar, skýrslur o.fl.).
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- sögu raforkuflutnings og uppbyggingu veitukerfa
- stöðlum og reglugerðum sem lúta að störfum rafiðnaðarmanna
- aðferðum til að verjast tjóni sem rafmagn getur haft á líf, heilsu og eignir manna
- raforkudreifikerfinu og einstökum hlutum þess
- orkuflutningi, álagsstraumum, spennuföllum og afltapi í veitukerfum
- jafngildismyndum (TN-, TT-, og IT kerfum)
- myndun og áhrifum yfirstrauma, bilanastrauma og snertispennu og aðferðir og búnað til varnar of hárri snertispennu
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- gera prófanir og úttektir á veitukerfum
- nota sérhæfð mælitæki
- annast skýrslugerð og skjalavörslu vegna prófana og úttekta á veitukerfum
- reikna út skammhlaupsstrauma
- nýta þekktar aðferðir til að verjast tjóni sem rafmagn getur haft á líf, heilsu og eignir manna
Nemandi skal geta hagnýtt þá þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- beita helstu öryggisráðstöfunum við vinnu (viðhald) á veitum
- verjast tjóni sem rafmagn getur haft á líf, heilsu og eignir manna
- nýta sér sérhæfð mælitæki og útreikninga
- gera fyllstu öryggisráðstafanir við vinnu og viðhald á vélum
- læra að þekkja aðferðir til að verjast tjóni sem rafmagn getur haft á líf, heilsu og eignir manna
- gera skýrslur um niðurstöður úttekta og fylla út tilkynningar
- gæta þess að fara eftir reglum um skjalavörslu og varðveita þau skjöl á þann hátt sem lög og reglugerðir kveða á um
Grunnþættir menntunar
Læsi, tjáning og samskipti um tölur og upplýsingar:
- Þjálfa nemendur í að greina upplýsingar.
- Þjálfa framsetningu og túlkun á tölulegum upplýsingum.
Námshæfni:
- Nemendur þjálfist í skipulögðum vinnubrögðum og læri að setja sér markmið.
- Nemendur læri að leita sér upplýsinga um þau málefni sem unnið er með.
- Nemendur læri að tjá sig og rökstyðja skoðanir sínar t.d. með kynningum á verkefnum.
- Styrkleikar hvers nemanda fái að njóta sín t.d. í hópavinnu.
- Nemendur læri að bera ábyrgð á námi sínu og skipuleggja sig. Þeir geti valið sér verkefni og skipulagt í samráði við kennara.
Skapandi hugsun og hagnýting þekkingar:
- Með mikilli og fjölbreyttri verkefnavinnu þurfa nemendur að vera skapandi og koma með nýjar og ferskar hugmyndir.
- Nemendur tileinki sér að vinna bæði í hópi og sjálfstætt að verkefnum þar sem unnið er að stofnun eigin fyrirtækis.
- Verkefni skulu skarast þvert á áfanga og tengja þannig saman í lokaafurð þekkingu frá mörgum fögum.
Jafnrétti:
- Framfylgja skal jafnréttisstefnu og jafnréttisáætlun skólans.
- Beita skal fjölbreyttu námsmati og kennsluaðferðum.
- Allir skulu eiga jafna möguleika á að rækta hæfileika sína á jafnréttisgrundvelli.
Menntun til sjálfbærni:
- Nemendur skilji mikilvægi þess að skapa samábyrgt samfélag.
- Nemendur geti tekist á um álitamál og ástundi lýðræðisleg vinnubrögð.
- Nemendum þekki og virði umhverfi sitt og auðlindir þess.
- Framfylgt skal umhverfisstefnu skólans.
Læsi, tjáning og samskipti á erlendum tungumálum:
- Nemendur eru hvattir til að afla sér upplýsinga á erlendum vefsíðum í fræðibókum og fleiru.
- Nemendur kynni sér hvernig leiðbeina má og kynna verklag og reglur fyrir erlendum starfsmönnum í íslenskum iðnfyrirtækjum.
Heilbrigði:
- Nemendur tileinki sér rétta líkamsbeitingu miðað við aðstæður.
- Nemendur skulu hvattir til að standa upp frá vinnu sinni og skipta um stöðu og umhverfi.
Læsi, tjáning og samskipti á íslensku:
- Nemendur kynna verkefni sín fyrir samnemendum og kennurum.
- Nemendur skili ritgerðarvinnu og verkefnum.
- Nemendur efli með sér skilning á mikilvægi góðrar málvitundar í tengslum við textavinnslu og fleira.
- Nemendur taki þátt í hópavinnu þar sem reynir á samskipti og tjáningu.
Lýðræði og mannréttindi:
- Áhersla er lögð á að allir nemendur fái að tjá sig og segja sína skoðun.
- Í hópverkefnum reynir mikið á samvinnu og nemendur læra að taka tillit til mismunandi skoðana.
- Nemendur læri að bera virðingu fyrir eigin störfum og annarra.