MÖRY4VV01(BA) - Meistaranám - Öryggisfræði, öryggis- og vinnuvistfræði
Undanfari : Sveinspróf í rafvirkjun, rafvélavirkjun eða rafveituvirkjun
Í boði
: Haust
Lýsing
Áfangar í pakkavali rafvirkjunar í iðnmeistaranámi eru kenndir hjá Rafmennt.
Viðfangsefni áfangans er áhættumat starfa og vinnuvernd. Lögum samkvæmt ber atvinnurekandi ábyrgð á að gerð sé skrifleg áætlun um öryggi og heilbrigði á vinnustað. Á niðurstöðum áhættumats skal svo gerð áætlun um heilsuvernd. Í áfanganum læra nemendur um helstu þætti sem tengjast áhættumati, framkvæmd þess, gerð vinnuverndaráætlana og þeirra jákvæðu breytinga og þekkingu sem þessir þættir skila inn í fyrirtæki. Farið er yfir grundvallaratriði í rafmagnsöryggi. Fjallað er um helstu hættur af rafmagni og áhrif rafmagns á mannslíkamann ásamt því að farið er yfir rétt vinnubrögð í og við raforkuvirki stór og smá, verklag og verkfæri til notkunar við rafmagnsvinnu. Einnig er fjallað um störf „kunnáttumanna“, hvernig staðið er að setningu og afnámi öryggisráðstafana og vinnu við rekstrareiningu í raforkukerfum. Jafnframt er farið yfir ábyrgðir, framkvæmd og samræmd vinnubrögð við rof og undirbúning vinnu við kerfishluta eða rekstrareiningar í raforkukerfum. Farið er yfir ákvæði gildandi reglugerða varðandi vinnu við raforkuvirki og túlkun þeirra. Sérstaklega er farið í gildandi verklagsreglur Mannvirkjastofnunar.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- þeim fjölmörgu atriðum sem áhættumat skal taka til s.s: álags, félagslegs og andlegs aðbúnaðar, umhverfisþátta, efni og notkun hættulegra efna á vinnustað, véla og tækja
- verkferlum sem fylgt er við áhættumat starfa og vinnustaða
- mikilvægi þess að störf og vinnustaðir séu áhættumetnir
- nauðsyn þess að störf rafiðnaðarmanna séu metin út frá fjölbreyttum störfum þeirra
- helstu áhættuþáttum sem störf rafiðnaðarmanna fela í sér
- helstu hjálpartækjum sem notuð eru við gerð áhættumats
- helstu þáttum sem skoðaðir eru við gerð áhættumats
- helstu sértæku verkfæri sem nýtt eru við áhættumat verklegra framkvæmda
- þeim jákvæðu breytingum og þekkingu sem verða til á vinnustöðum í kjölfar áhættumats
- gildi og ávinning þess að heilsuverndaráætlun sé gerð á vinnustöðum
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- greina helstu áhættuþætti á vinnustöðum
- velja þá þætti starfs rafiðnaðarmanna og vinnustaða þeirra sem þarf að áhættumeta
- beita kerfisbundnum aðferðum við áhættumat starfa og vinnustaða
- nýta hjálpargögn og verkfæri sem nýtt eru við áhættumat starfa og vinnustaða
- tryggja að reglum um áhættumat, öryggi og vinnuvernd sé fylgt
Nemandi skal geta hagnýtt þá þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- hagnýta þekkingu sína um helstu áhættuþætti sem fylgja störfum og vinnustöðum í rafiðnaði
- tjá sig um og leiðbeina öðrum um áhættuþætti starfa og vinnustaði í rafiðnaði þannig að þeir skili jákvæðum breytingum, þekkingu og aukinni vinnuvernd í störfum og á vinnustöðum
- nýta sérhæfða þekkingu sína um helstu áhættuþætti í störfum og á vinnustöðum rafiðnaðarmanna
- sýna frumkvæði og innsæi við mat á áhættu sem fylgir störfum rafiðnaðarmanna
- vera meðvitaður um nauðsyn þess að störf og vinnustaðir séu áhættumetnir
- geta nýtt sér þekkingu sína og leikni á gagnrýninn og uppbyggilegan hátt
Grunnþættir menntunar
Læsi, tjáning og samskipti um tölur og upplýsingar:
- Þjálfa nemendur í að greina upplýsingar.
- Þjálfa framsetningu og túlkun á tölulegum upplýsingum.
Námshæfni:
- Nemendur þjálfist í skipulögðum vinnubrögðum og læri að setja sér markmið.
- Nemendur læri að leita sér upplýsinga um þau málefni sem unnið er með.
- Nemendur læri að tjá sig og rökstyðja skoðanir sínar t.d. með kynningum á verkefnum.
- Styrkleikar hvers nemanda fái að njóta sín t.d. í hópavinnu.
- Nemendur læri að bera ábyrgð á námi sínu og skipuleggja sig. Þeir geti valið sér verkefni og skipulagt í samráði við kennara.
Skapandi hugsun og hagnýting þekkingar:
- Með mikilli og fjölbreyttri verkefnavinnu þurfa nemendur að vera skapandi og koma með nýjar og ferskar hugmyndir.
- Nemendur tileinki sér að vinna bæði í hópi og sjálfstætt að verkefnum þar sem unnið er að stofnun eigin fyrirtækis.
- Verkefni skulu skarast þvert á áfanga og tengja þannig saman í lokaafurð þekkingu frá mörgum fögum.
Jafnrétti:
- Framfylgja skal jafnréttisstefnu og jafnréttisáætlun skólans.
- Beita skal fjölbreyttu námsmati og kennsluaðferðum.
- Allir skulu eiga jafna möguleika á að rækta hæfileika sína á jafnréttisgrundvelli.
Menntun til sjálfbærni:
- Nemendur skilji mikilvægi þess að skapa samábyrgt samfélag.
- Nemendur geti tekist á um álitamál og ástundi lýðræðisleg vinnubrögð.
- Nemendum þekki og virði umhverfi sitt og auðlindir þess.
- Framfylgt skal umhverfisstefnu skólans.
Læsi, tjáning og samskipti á erlendum tungumálum:
- Nemendur eru hvattir til að afla sér upplýsinga á erlendum vefsíðum í fræðibókum og fleiru.
- Nemendur kynni sér hvernig leiðbeina má og kynna verklag og reglur fyrir erlendum starfsmönnum í íslenskum iðnfyrirtækjum.
Heilbrigði:
- Nemendur tileinki sér rétta líkamsbeitingu miðað við aðstæður.
- Nemendur skulu hvattir til að standa upp frá vinnu sinni og skipta um stöðu og umhverfi.
Læsi, tjáning og samskipti á íslensku:
- Nemendur kynna verkefni sín fyrir samnemendum og kennurum.
- Nemendur skili ritgerðarvinnu og verkefnum.
- Nemendur efli með sér skilning á mikilvægi góðrar málvitundar í tengslum við textavinnslu og fleira.
- Nemendur taki þátt í hópavinnu þar sem reynir á samskipti og tjáningu.
Lýðræði og mannréttindi:
- Áhersla er lögð á að allir nemendur fái að tjá sig og segja sína skoðun.
- Í hópverkefnum reynir mikið á samvinnu og nemendur læra að taka tillit til mismunandi skoðana.
- Nemendur læri að bera virðingu fyrir eigin störfum og annarra.