MÖRY4AS02(BA) - Meistaranám - Öryggisfræði, öryggis- og aðgangsstýrikerfi

Undanfari : Sveinspróf í rafvirkjun, rafvélavirkjun eða rafveituvirkjun
Í boði : Haust

Lýsing

Áfangar í pakkavali rafvirkjunar í iðnmeistaranámi eru kenndir hjá Rafmennt.

Í áfanganum er farið í uppbyggingu, forsendur og hönnun sambyggðra öryggis- og aðgangsstýrikerfa. Nemendur fá yfirsýn yfir uppbyggingu innbrotsviðvörunarkerfa og forsendur sem liggja að baki stjórnun og vöktun hurða. Einnig er farið í öryggisstig við vöktun hurða og frágang búnaðar við hurðir. Þá eru mismunandi gerðir aðgangskerfa kynntar, farið í val á aðgangskortum, skilríkjum, lestrartækni og raflyklum og þá möguleika sem slíkur búnaður býður upp á. Þátttakendur fá innsýn í og skilning á helstu kerfum, tengingum, virkni og almennum viðmiðunum um öryggis- og aðgangskerfi hér á landi. Áfanginn er fyrir rafiðnaðarmenn sem grunnám vegna starfa við uppsetningar og viðhaldsstörf tengdum aðgangs og öryggiskerfum. Einnig er námið góður grunnur fyrir þá sem sinna öryggisráðgjöf og sölustörfum.


Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • uppbyggingu, forsendum og hönnun sambyggðra öryggis- og aðgangsstýrikerfa
  • forsendum sem liggja að baki stjórnun og vöktun hurða
  • mismunandi öryggisstigi við vöktun hurða og frágangi búnaðar við hurðir
  • mismunandi gerðum aðgangskerfa
  • vali á aðgangskortum, skilríkjum, lestrartækni og raflyklum


Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • greina mismunandi þarfir fyrir öryggis- og aðgangskerfi og annan öryggisbúnað
  • miðla þekkingu sinni um öryggis- og aðgangskerfi og annan öryggisbúnað
  • velja öryggis- og aðgangskerfi og annan öryggisbúnað sem hæfir hverju sinni
  • meta þörf fyrir öryggis- og aðgangskerfi og annan öryggisbúnað


Nemandi skal geta hagnýtt þá þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • tileinka sér nýjungar í öryggis- og aðgangskerfum og annan öryggisbúnað
  • setja upp, halda við, stilla og prófa öryggis- og aðgangskerfi og annan öryggisbúnað
  • tjá sig um og leiðbeina öðrum um öryggis- og aðgangskerfi og íhluti þeirra
  • nýta sérhæfða þekkingu sína til að setja upp og halda við öryggis- og aðgangskerfum og annan öryggisbúnað
  • bera ábyrgð á öryggis- og aðgangskerfum og öðrum öryggisbúnaði sem hann leggur
  • sýna frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum við öryggis- og aðgangskerfi og annan öryggisbúnað
  • geta nýtt sér þekkingu sína og leikni tengda öryggis- og aðgangskerfum

 

Grunnþættir menntunar

Læsi, tjáning og samskipti um tölur og upplýsingar:

  • Þjálfa nemendur í að greina upplýsingar.
  • Þjálfa framsetningu og túlkun á tölulegum upplýsingum.


Námshæfni:

  • Nemendur þjálfist í skipulögðum vinnubrögðum og læri að setja sér markmið.
  • Nemendur læri að leita sér upplýsinga um þau málefni sem unnið er með.
  • Nemendur læri að tjá sig og rökstyðja skoðanir sínar t.d. með kynningum á verkefnum.
  • Styrkleikar hvers nemanda fái að njóta sín t.d. í hópavinnu.
  • Nemendur læri að bera ábyrgð á námi sínu og skipuleggja sig. Þeir geti valið sér verkefni og skipulagt í samráði við kennara.


Skapandi hugsun og hagnýting þekkingar:

  • Með mikilli og fjölbreyttri verkefnavinnu þurfa nemendur að vera skapandi og koma með nýjar og ferskar hugmyndir.
  • Nemendur tileinki sér að vinna bæði í hópi og sjálfstætt að verkefnum þar sem unnið er að stofnun eigin fyrirtækis.
  • Verkefni skulu skarast þvert á áfanga og tengja þannig saman í lokaafurð þekkingu frá mörgum fögum.


Jafnrétti:

  • Framfylgja skal jafnréttisstefnu og jafnréttisáætlun skólans.
  • Beita skal fjölbreyttu námsmati og kennsluaðferðum.
  • Allir skulu eiga jafna möguleika á að rækta hæfileika sína á jafnréttisgrundvelli.


Menntun til sjálfbærni:

  • Nemendur skilji mikilvægi þess að skapa samábyrgt samfélag.
  • Nemendur geti tekist á um álitamál og ástundi lýðræðisleg vinnubrögð.
  • Nemendum þekki og virði umhverfi sitt og auðlindir þess.
  • Framfylgt skal umhverfisstefnu skólans.

 

Læsi, tjáning og samskipti á erlendum tungumálum:

  • Nemendur eru hvattir til að afla sér upplýsinga á erlendum vefsíðum í fræðibókum og fleiru.
  • Nemendur kynni sér hvernig leiðbeina má og kynna verklag og reglur fyrir erlendum starfsmönnum í íslenskum iðnfyrirtækjum.

 

Heilbrigði:

  • Nemendur tileinki sér rétta líkamsbeitingu miðað við aðstæður.
  • Nemendur skulu hvattir til að standa upp frá vinnu sinni og skipta um stöðu og umhverfi.

 

Læsi, tjáning og samskipti á íslensku:

  • Nemendur kynna verkefni sín fyrir samnemendum og kennurum.
  • Nemendur skili ritgerðarvinnu og verkefnum.
  • Nemendur efli með sér skilning á mikilvægi góðrar málvitundar í tengslum við textavinnslu og fleira.
  • Nemendur taki þátt í hópavinnu þar sem reynir á samskipti og tjáningu.

 

Lýðræði og mannréttindi:

  • Áhersla er lögð á að allir nemendur fái að tjá sig og segja sína skoðun.
  • Í hópverkefnum reynir mikið á samvinnu og nemendur læra að taka tillit til mismunandi skoðana.
  • Nemendur læri að bera virðingu fyrir eigin störfum og annarra.