MHLJ4MS02(BA) - Meistaranám - Hljóðtækni

Undanfari : Sveinspróf í rafvirkjun, rafvélavirkjun eða rafveituvirkjun
Í boði : Haust

Lýsing

Áfangar í pakkavali rafvirkjunar í iðnmeistaranámi eru kenndir hjá Rafmennt.

Áfanginn er grunnáfangi í hljóðtækni. Í fyrsta hluta áfangans er farið yfir helstu grunnþætti hljóðtækni, uppbyggingu hljóð- og upptökukerfa, helstu hugtök, hljóðflæði, samspil uppmögnunar og rýmis, skynjun og heyrn. Þá er helsti búnaður skoðaður, notkun hans og virkni. Þá eru öryggishugtök einnig kynnt og rædd. Í öðrum hluta áfangans er fjallað um ferð hljóðmerkis gegnum búnað og helstu takmörk hans. Þá er fjallað um hvernig hljóðtækni tengist rafmagnsfræði og hljómburðarfræðum, um möguleika og takmarkanir hljóðsins og stafræna miðlun. Í síðasta hluta áfangans eru mæligildi hljóðmælinga skoðuð og prófuð. Nemendur glöggva sig á þeim aðferðum sem beitt er við mælingar á hljóðbúnaði og hljóðkerfum og kunni að lesa úr mæligögnum. Þá eru mælingar hljóðkerfa prófaðar og aðferðir skýrðar.


Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • helstu grunnþáttum hljóðtækninnar
  • helstu hugtökum sem snúa að hljóði og hljóðöryggi
  • notkun og virkni búnaðar sem tengjast hljóði
  • tengslum hljóð-, rafmagns- og hljómburðarfræði
  • stafrænni miðlun hljóðs
  • muninum á afli búnaðar og hljóðstyrk í lofti
  • hvernig hljóðstyrkur breytist með fjarlægð
  • mismunandi flokkum magnara, hlið- og raðtengingu hátalara


Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • beita helstu hugtökum hljóðtækninnar
  • skilja hvernig hljóð- og upptökukerfi eru byggð upp
  • gera helstu útreikninga varðandi hljóðstyrk eftir fjarlægð frá upptökum
  • velja og nýta þær reikniaðferðir sem henta hverju sinni
  • átta sig á hvernig hljóðmerki fer gegnum búnað
  • nota helstu mæliaðferðir og tengja þær við daglega notkun
  • lesa úr mæligögnum


Nemandi skal geta hagnýtt þá þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • tileinka sér helstu vinnuaðferðir sem tengjast hljóðtækni
  • gera helstu útreikninga og notkun þeirra við lausn viðfangsefna
  • prófa og mæla hljóðkerfi
  • vinna verkefni sem tengjast hljóðtækni, uppsetningu og prófun búnaðar
  • sýna frumkvæði og innsæi við lausn verkefna sem tengjast hljóðtækni

 

Grunnþættir menntunar

Læsi, tjáning og samskipti um tölur og upplýsingar:

  • Þjálfa nemendur í að greina upplýsingar.
  • Þjálfa framsetningu og túlkun á tölulegum upplýsingum.


Námshæfni:

  • Nemendur þjálfist í skipulögðum vinnubrögðum og læri að setja sér markmið.
  • Nemendur læri að leita sér upplýsinga um þau málefni sem unnið er með.
  • Nemendur læri að tjá sig og rökstyðja skoðanir sínar t.d. með kynningum á verkefnum.
  • Styrkleikar hvers nemanda fái að njóta sín t.d. í hópavinnu.
  • Nemendur læri að bera ábyrgð á námi sínu og skipuleggja sig. Þeir geti valið sér verkefni og skipulagt í samráði við kennara.


Skapandi hugsun og hagnýting þekkingar:

  • Með mikilli og fjölbreyttri verkefnavinnu þurfa nemendur að vera skapandi og koma með nýjar og ferskar hugmyndir.
  • Nemendur tileinki sér að vinna bæði í hópi og sjálfstætt að verkefnum þar sem unnið er að stofnun eigin fyrirtækis.
  • Verkefni skulu skarast þvert á áfanga og tengja þannig saman í lokaafurð þekkingu frá mörgum fögum.


Jafnrétti:

  • Framfylgja skal jafnréttisstefnu og jafnréttisáætlun skólans.
  • Beita skal fjölbreyttu námsmati og kennsluaðferðum.
  • Allir skulu eiga jafna möguleika á að rækta hæfileika sína á jafnréttisgrundvelli.


Menntun til sjálfbærni:

  • Nemendur skilji mikilvægi þess að skapa samábyrgt samfélag.
  • Nemendur geti tekist á um álitamál og ástundi lýðræðisleg vinnubrögð.
  • Nemendum þekki og virði umhverfi sitt og auðlindir þess.
  • Framfylgt skal umhverfisstefnu skólans.

 

Læsi, tjáning og samskipti á erlendum tungumálum:

  • Nemendur eru hvattir til að afla sér upplýsinga á erlendum vefsíðum í fræðibókum og fleiru.
  • Nemendur kynni sér hvernig leiðbeina má og kynna verklag og reglur fyrir erlendum starfsmönnum í íslenskum iðnfyrirtækjum.

 

Heilbrigði:

  • Nemendur tileinki sér rétta líkamsbeitingu miðað við aðstæður.
  • Nemendur skulu hvattir til að standa upp frá vinnu sinni og skipta um stöðu og umhverfi.

 

Læsi, tjáning og samskipti á íslensku:

  • Nemendur kynna verkefni sín fyrir samnemendum og kennurum.
  • Nemendur skili ritgerðarvinnu og verkefnum.
  • Nemendur efli með sér skilning á mikilvægi góðrar málvitundar í tengslum við textavinnslu og fleira.
  • Nemendur taki þátt í hópavinnu þar sem reynir á samskipti og tjáningu.

 

Lýðræði og mannréttindi:

  • Áhersla er lögð á að allir nemendur fái að tjá sig og segja sína skoðun.
  • Í hópverkefnum reynir mikið á samvinnu og nemendur læra að taka tillit til mismunandi skoðana.
  • Nemendur læri að bera virðingu fyrir eigin störfum og annarra.