Lýsing
Áfangar í pakkavali rafvirkjunar í iðnmeistaranámi eru kenndir hjá Rafmennt.
Áfanginn fjallar um staðla sem fjalla um Fjarskiptalagnir í íbúðarhúsnæði - Loftnetskerfi - Netkerfi - Símkerfi – Hússtjórnarkerfi. og tækni og búnað sem tilheyra notkun hans. Í áfanganum er fjallað um kerfishönnun, lagnir, frágang búnaðar, mælingar og skýrslugerð. Einnig er fjallað um val á fjarskiptakerfum og hvaða flutningsleiðir henta hverju verkefni. Með þessu er leitast við að gera þátttakendur hæfari til að hanna fjarskiptalagnir og vera ráðgefandi varðandi fjarskiptakerfi íbúðarhúsnæðis. Í náminu er fjallað um rafsegulbylgjuna og eiginleika hennar til dreifingar við mismunandi aðstæður, tíðnirófið og nýtingu þess, mælieininguna decibel (dB) sem notuð er til mælinga á mögnun, deyfingu og spenna skýrð, truflandi suð í fjarskiptakerfum og truflandi millimótun í fjarskiptakerfum. Farið er yfir mismunandi tegundir loftneta og kostir og gallar greindir m.t.t. aðstæðna, FM-, UHF- og örbylgjuloftnet. Strengir loftnetskerfa, m.a. Koax-strengurinn, eru kynntir ásamt ýmsum íhlutum loftnetskerfa, s.s. magnarar, síur, deilar, blandarar, tenglar og tengi. Farið er í útreikninga á loftnetskerfum – miðkerfi / raðkerfi. Nemendur vinna mælingaverkefni sem þjálfa þá í að skila af sér skýrslu að loknu verki, samkvæmt forskrift staðalsins. Nemendur kynnast mismunandi valmöguleikum sem í boði eru varðandi fjarskiptaflutning innanhúss með strengjum eða þráðlaust og fjallað er um kosti og galla hverrar leiðar. Einnig er gerð grein fyrir hönnun á dreifikerfum í stærri byggingar og nemendur gera mælingar og stillingar á búnaði fyrir slík kerfi. Áfanginn er ætlaður lagna- og kerfishönnuðum, sölumönnum á raflagnaefni og stjórnendum verka af þessu tagi. Áfanginn er einnig ætlaður rafiðnaðarmönnum sem vinna við fjarskiptalagnir í nýbyggingum og við endurnýjun á eldri byggingum. Áfanginn er einnig fyrir raflagnahönnuði, sölumenn og rafverktaka sem þurfa að þekkja fjarskiptastaðalinn vel, en starfa ekki sjálfir í verklegu framkvæmdunum. Þá eru reglur Póst-og fjarskiptastofnunar um verndun fjarskipta kynntar og lögð áhersla á gerð lokaskýrslu fyrir hvert verk, samkvæmt forskrift staðalsins.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- staðlinum og hvernig ganga skal frá lögnum, mæla lagnir og skrá niðurstöður í mælingaskýrslu
- hvernig gera á lokaskýrslu fyrir hvert verk samkvæmt staðlinum
- fjarskiptalögnum heimilisins
- staðlinum og nýjungum sem fylgja honum
- mismunandi valmöguleikum sem í boði eru varðandi fjarskiptaflutning innanhúss
- kostum og göllum mismunandi leiða í fjarskiptaflutningi innanhúss
- hönnun á dreifikerfum fyrir fjarskiptaflutning i stærri byggingum
- mismunandi tegundum loftneta, kostum þeirra og göllum
- loftnetsuppsetningum
- helstu truflunum í fjarskiptakerfum
- mælieiningunni decibel sem notuð er til mælinga á mögnun, deyfingu og spennu
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- ganga skal frá lögnum, mæla lagnir og skrá niðurstöður í mælingaskýrslu samkvæmt staðlinum
- gera lokaskýrslu fyrir hvert verk samkvæmt staðlinum
- fylgja staðlinum við val, sölu og hönnun raflagnakerfa í íbúðarhúsnæði
- greina frá kostum og göllum mismunandi leiða í fjarskiptaflutningi innanhúss
- velja og leiðbeina um val á dreifikerfi fyrir fjarskiptaflutning í íbúðarhúsnæði
- velja loftnet sem henta aðstæðum og setja þau upp
- þekkja helstu útreikninga sem tengjast loftnetskerfum
- skipta um helstu íhluti loftnetskerfa
- gera helstu mælingar á mögnun, deyfingu og spennu
- nýta þekkingu sína til að leysa tæknileg vandamál sem tengjast loftnetskerfum
Nemandi skal geta hagnýtt þá þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- skila af sér verkefnum samkvæmt staðlinum
- setja upp, halda við, stilla og prófa fjarskiptakerfi innanhúss samkvæmt staðlinum
- tjá sig um og leiðbeina öðrum um fjarskiptalagnir í íbúðarhúsnæði
- nýta sérhæfða þekkingu sína til að gera helstu mælingar og útreikninga samkvæmt staðlinum
- sýna frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum sem tengjast fjarskiptakerfum innanhúss
- geta nýtt sér þekkingu sína og leikni til að gefa viðskiptavinum ráð hvað varðar fjarskiptamál í íbúðarhúsnæði
- tjá sig um og leiðbeina öðrum um loftnet og uppsetningu þeirra
- nýta sérhæfða þekkingu sína til að gera helstu mælingar og útreikninga sem tengjast lofnetum og fjarskiptum
Grunnþættir menntunar
Læsi, tjáning og samskipti um tölur og upplýsingar:
- Þjálfa nemendur í að greina upplýsingar.
- Þjálfa framsetningu og túlkun á tölulegum upplýsingum.
Námshæfni:
- Nemendur þjálfist í skipulögðum vinnubrögðum og læri að setja sér markmið.
- Nemendur læri að leita sér upplýsinga um þau málefni sem unnið er með.
- Nemendur læri að tjá sig og rökstyðja skoðanir sínar t.d. með kynningum á verkefnum.
- Styrkleikar hvers nemanda fái að njóta sín t.d. í hópavinnu.
- Nemendur læri að bera ábyrgð á námi sínu og skipuleggja sig. Þeir geti valið sér verkefni og skipulagt í samráði við kennara.
Skapandi hugsun og hagnýting þekkingar:
- Með mikilli og fjölbreyttri verkefnavinnu þurfa nemendur að vera skapandi og koma með nýjar og ferskar hugmyndir.
- Nemendur tileinki sér að vinna bæði í hópi og sjálfstætt að verkefnum þar sem unnið er að stofnun eigin fyrirtækis.
- Verkefni skulu skarast þvert á áfanga og tengja þannig saman í lokaafurð þekkingu frá mörgum fögum.
Jafnrétti:
- Framfylgja skal jafnréttisstefnu og jafnréttisáætlun skólans.
- Beita skal fjölbreyttu námsmati og kennsluaðferðum.
- Allir skulu eiga jafna möguleika á að rækta hæfileika sína á jafnréttisgrundvelli.
Menntun til sjálfbærni:
- Nemendur skilji mikilvægi þess að skapa samábyrgt samfélag.
- Nemendur geti tekist á um álitamál og ástundi lýðræðisleg vinnubrögð.
- Nemendum þekki og virði umhverfi sitt og auðlindir þess.
- Framfylgt skal umhverfisstefnu skólans.
Læsi, tjáning og samskipti á erlendum tungumálum:
- Nemendur eru hvattir til að afla sér upplýsinga á erlendum vefsíðum í fræðibókum og fleiru.
- Nemendur kynni sér hvernig leiðbeina má og kynna verklag og reglur fyrir erlendum starfsmönnum í íslenskum iðnfyrirtækjum.
Heilbrigði:
- Nemendur tileinki sér rétta líkamsbeitingu miðað við aðstæður.
- Nemendur skulu hvattir til að standa upp frá vinnu sinni og skipta um stöðu og umhverfi.
Læsi, tjáning og samskipti á íslensku:
- Nemendur kynna verkefni sín fyrir samnemendum og kennurum.
- Nemendur skili ritgerðarvinnu og verkefnum.
- Nemendur efli með sér skilning á mikilvægi góðrar málvitundar í tengslum við textavinnslu og fleira.
- Nemendur taki þátt í hópavinnu þar sem reynir á samskipti og tjáningu.
Lýðræði og mannréttindi:
- Áhersla er lögð á að allir nemendur fái að tjá sig og segja sína skoðun.
- Í hópverkefnum reynir mikið á samvinnu og nemendur læra að taka tillit til mismunandi skoðana.
- Nemendur læri að bera virðingu fyrir eigin störfum og annarra.