Viðfangsefni undanfara áfanga eru rifjuð upp. Áfram er unnið að því að þjálfa lesskilning, hlustun, tal og ritun. Textar verða lengri og margvíslegri. Orðaforði er aukinn, ný málfræðiatriði eru þjálfuð. Að mestu er lokið við að fara yfir grundvallaratriði spænska málkerfisins. Frásagnir í nútíð og þátíð eru þjálfaðar munnlega og skriflega. Áfram er unnið að því að kynna spænskumælandi svæði og menningu þeirra. Nemendur eru þjálfaðir skipulega í að nýta sér ýmis hjálpargögn, s.s. orðabækur, málfræðibækur og netið
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- skilja talað mál um kunnuglegt efni í fjöl- og myndmiðlum ef talað er hægt og skýrt
- tileinka sér aðalatriðin í stuttum og einfölduðum rauntextum
- tjá skoðanir sínar og hugsanir á einfaldan hátt
- rita stutta, einfalda og samfellda texta um kunnuglegt efni í nútíð og þátíð
- lesa einfaldan bókmenntatexta
Grunnþættir menntunar
Læsi: Nemendur þjálfast í að skilja texta og myndmál í spænskumælandi efni. Nemendur fá innsýn í hvernig spænska sem tungumál mótar menningarskilning spænskumælandi samfélaga. Nemendur fá skilning á mismunandi beitingu tungumálsins í ólíkum menningarheimum spænskumælandi landa.
Sjálfbærni: Nemendur kynnast leiðum sem eru notaðar í spænskumælandi löndum til að takast á við vandamál hvað varðar sjálfbærni. Nemendur kynnast nýjum áskorunum hvað varðar sjálfbærni í tengslamyndun milli kynslóða í ýmsum spænskumælandi löndum nútímans.
Jafnrétti: Skoðuð er staða jafnréttis í spænskumælandi löndum, svo sem hvað varðar kynþætti, menningu og tungumál, sbr. menningu og bakgrunn frumbyggja í Suður-Ameríku.
Lýðræði og mannréttindi: Nemendur kynnast sögu nokkurra spænskumælandi landa og þróun þeirra hvað varðar lýðræði og mannréttindi.
Sköpun: Nemendur takast á við menningarheima spænskumælandi landa á fjölbreyttan hátt, svo sem í gegnum tónlist, myndbönd og texta.