Lýsing
Í áfanganum er aðaláhersla á varbúnað, vírsverleika og rafdreifiskápa. Farið er í uppbyggingu á minni húsveitum, staðsetningu á búnaði , lagnaleiðir og brunaþéttingar kynntar. Innfeldar og áfelldar lagnir. Farið er í reglugerðarákvæði varnarráðstafana sem varða snerti og brunahættu. Lögð er áhersla á skilning nemanda á varbúnaði, bruna og snertihættu. Nemendur fá þjálfun í notkun mælitækja og lögð er áhersla á fagmannleg vinnubrögð.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- hættu á skemmdum á búnaði þegar mælitækjum er beitt
- reglum um sverleika leiðara miðað við áraun og staðla sem um það gilda
- reglum um varráðstafanir er varðar snerti og brunahættu
- mælitækjum sem notuð eru við bilanaleit
- uppbyggingu minni veitna og mikilvægi efnisvals í þær
- öryggi þess að hafa skipulag og þrifarlegt á vinnustaðnum
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- mæla einangrunarbilun og spennur í veitum
- leggja rör og strengi og ganga frá dreifiskáp
- lesa úr uppdráttum og fyrirmælum
- tengja ýmsar gerðir fjarrofa
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- leggja raflagnir í minni veitur
- vinna eftir fyrirmælum
- gera sér grein fyrir röð varnarráðstafana í húsveitum
- ákveða vírsverleika lagna
- einangra, mæla og finna bilun í húskerfi
Grunnþættir menntunar
Í þessum áfanga er unnið markvisst að því að efla faglæsi nemenda á táknkerfi, teikningar og tæknilegar upplýsingar. Lögð er rík áhersla á sköpun og lausnamiðaða hugsun þar sem nemendur hagnýta þekkingu sína í raunhæfum verkefnum. Sjálfbærni og fagleg vinnubrögð eru fléttuð inn í námið með áherslu á skynsamlega nýtingu efnis og varanlegar lausnir. Öryggi er ætíð í forgrunni til að tryggja heilbrigði og velferð í vinnuumhverfinu. Lýðræði og mannréttindi birtast í því að ríkt samráð er haft við nemendur; þeim er tryggt rými til að veita ábendingar, eiga uppbyggilegt samtal við kennara um tímasetningar á verkefnum og prófum. Loks er jafnrétti lagt til grundvallar í öllu starfi, þar sem öllum eru tryggð jöfn tækifæri til að dafna og eflast sem fagaðilar í hvetjandi námsumhverfi.