RAFL2GC03 - Raflagnir 3

Undanfari : RAFL1GB03
Í boði : Haust

Lýsing

Í áfanganum er aðaláhersla á varbúnað, vírsverleika og rafdreifiskápa. Farið er í uppbyggingu á minni húsveitum, staðsetningu á búnaði , lagnaleiðir og brunaþéttingar kynntar. Innfeldar og áfelldar lagnir. Farið er í reglugerðarákvæði varnarráðstafana sem varða snerti og brunahættu. Lögð er áhersla á skilning nemanda á varbúnaði, bruna og snertihættu. Nemendur fá þjálfun í notkun mælitækja og lögð er áhersla á fagmannleg vinnubrögð.


Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • hættu á skemmdum á búnaði þegar mælitækjum er beitt
  • reglum um sverleika leiðara miðað við áraun og staðla sem um það gilda
  • reglum um varráðstafanir er varðar snerti og brunahættu
  • mælitækjum sem notuð eru við bilanaleit
  • uppbyggingu minni veitna og mikilvægi efnisvals í þær
  • öryggi þess að hafa skipulag og þrifarlegt á vinnustaðnum


Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • mæla einangrunarbilun og spennur í veitum
  • leggja rör og strengi og ganga frá dreifiskáp
  • lesa úr uppdráttum og fyrirmælum
  • tengja ýmsar gerðir fjarrofa


Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • leggja raflagnir í minni veitur
  • vinna eftir fyrirmælum
  • gera sér grein fyrir röð varnarráðstafana í húsveitum
  • ákveða vírsverleika lagna
  • einangra, mæla og finna bilun í húskerfi

 

Grunnþættir menntunar

Í þessum áfanga er unnið markvisst að því að efla faglæsi nemenda á táknkerfi, teikningar og tæknilegar upplýsingar. Lögð er rík áhersla á sköpun og lausnamiðaða hugsun þar sem nemendur hagnýta þekkingu sína í raunhæfum verkefnum. Sjálfbærni og fagleg vinnubrögð eru fléttuð inn í námið með áherslu á skynsamlega nýtingu efnis og varanlegar lausnir. Öryggi er ætíð í forgrunni til að tryggja heilbrigði og velferð í vinnuumhverfinu. Lýðræði og mannréttindi birtast í því að ríkt samráð er haft við nemendur; þeim er tryggt rými til að veita ábendingar, eiga uppbyggilegt samtal við kennara um tímasetningar á verkefnum og prófum. Loks er jafnrétti lagt til grundvallar í öllu starfi, þar sem öllum eru tryggð jöfn tækifæri til að dafna og eflast sem fagaðilar í hvetjandi námsumhverfi.