MÖRU4MS02(BA) - Meistaranám - Öryggis- og umhverfismál

Undanfari : A-hluti iðnmeistaranáms
Í boði : Haust

Lýsing

Fjallað er annarsvegar um meginmál laga 46/180 (Lög um aðbúnað, hollustuhætti og öryggi á vinnustöðum) ásamt reglugerð 920/2006 (reglugerð um skipulag og framkvæmd vinnuverndarstarfs á vinnustöðum) og reglur 547/1996 (um aðbúnað, hollustuhætti og öryggisráðstafanir á byggingarvinnustöðum og við aðra tímabundna mannvirkjagerð) og hins vegar um meginmál laga á sviði umhverfisstjórnunar (m.a. lög 7/1998). Kynntar eru helstu stjórnsýslustofnanir (heimasíður þeirra, kröfur og fræðsluefni). Kennslan miðast við að nemendur öðlist góðan skilning á kröfum löggjafans um forvarnastarf fyrirtækja s.s. áætlun um öryggi og heilbrigði (þ.m.t. krafan um framkvæmd áhættumats), lágmarkskröfur löggjafans til vinnuumhverfis, kröfur um flokkun úrgangs, endurvinnslu, efnanotkun o.fl. Ennfremur að nemendur fái innsýn í nútíma aðferðir í vinnuverndar- og umhverfismálum þar sem m.a. atferlissálfræði og stjórnun vinnuverndar- og umhverfismála hafa fléttast saman. 


Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • skyldum atvinnurekenda, stjórnenda og verktaka í vinnuverndar- og umhverfismálum
  • lágmarkskröfum löggjafans til vinnuumhverfis- og umhverfismála
  • gerð áætlunar um öryggi og heilbrigði, ásamt áhættumati (öll fyrirtæki)
  • sérkröfum til mannvirkjagerðar (öryggis- og heilbrigðisáætlanir, samræmingaraðilar o.fl.)
  • kröfur og óskir löggjafans varðandi umhverfismál (flokkun, hringrásarhagkerfi o.fl.)  


Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • greina kröfur og hlutverk sem lúta að umhverfis- og vinnuumhverfismálum
  • ná í nauðsynlegar upplýsingar og þekkingu um vinnuverndar og öryggismál
  • miðla þekkingu á öryggis-, umhverfis- og vinnuvistfræðilegum málum
  • framkvæma áhættumat (almennt og fyrir varasama verkþætti)
  • skipuleggja eftirfylgni með stefnu í umhverfis- og vinnuumhverfismálum


Nemandi skal geta hagnýtt þá þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • beita mismunandi aðferðum við framkvæmd umhverfis- og vinnuumhverfisstjórnunar þ.m.t. við stjórnun framkvæmda
  • beita þekkingu sinni á sviði umhverfis-, öryggis og vinnuverndarmála á raunveruleg dæmi
  • rökstyðja eigin lausnir í umhverfis-, vinnuverndar- og öryggismálum
  • meta nauðsynlegt umfang forvarnaraðgerðir eftir umfangi verka 

 

Grunnþættir menntunar

Læsi, tjáning og samskipti um tölur og upplýsingar:

  • Þjálfa nemendur í að greina upplýsingar.
  • Þjálfa framsetningu og túlkun á tölulegum upplýsingum.


Námshæfni:

  • Nemendur þjálfist í skipulögðum vinnubrögðum og læri að setja sér markmið.
  • Nemendur læri að leita sér upplýsinga um þau málefni sem unnið er með.
  • Nemendur læri að tjá sig og rökstyðja skoðanir sínar t.d. með kynningum á verkefnum.
  • Styrkleikar hvers nemanda fái að njóta sín t.d. í hópavinnu.
  • Nemendur læri að bera ábyrgð á námi sínu og skipuleggja sig. Þeir geti valið sér verkefni og skipulagt í samráði við kennara.


Skapandi hugsun og hagnýting þekkingar:

  • Með mikilli og fjölbreyttri verkefnavinnu þurfa nemendur að vera skapandi og koma með nýjar og ferskar hugmyndir.
  • Nemendur tileinki sér að vinna bæði í hópi og sjálfstætt að verkefnum þar sem unnið er að stofnun eigin fyrirtækis.
  • Verkefni skulu skarast þvert á áfanga og tengja þannig saman í lokaafurð þekkingu frá mörgum fögum.


Jafnrétti:

  • Framfylgja skal jafnréttisstefnu og jafnréttisáætlun skólans.
  • Beita skal fjölbreyttu námsmati og kennsluaðferðum.
  • Allir skulu eiga jafna möguleika á að rækta hæfileika sína á jafnréttisgrundvelli.


Menntun til sjálfbærni:

  • Nemendur skilji mikilvægi þess að skapa samábyrgt samfélag.
  • Nemendur geti tekist á um álitamál og ástundi lýðræðisleg vinnubrögð.
  • Nemendum þekki og virði umhverfi sitt og auðlindir þess.
  • Framfylgt skal umhverfisstefnu skólans.

 

Læsi, tjáning og samskipti á erlendum tungumálum:

  • Nemendur eru hvattir til að afla sér upplýsinga á erlendum vefsíðum í fræðibókum og fleiru.
  • Nemendur kynni sér hvernig leiðbeina má og kynna verklag og reglur fyrir erlendum starfsmönnum í íslenskum iðnfyrirtækjum.

 

Heilbrigði:

  • Nemendur tileinki sér rétta líkamsbeitingu miðað við aðstæður.
  • Nemendur skulu hvattir til að standa upp frá vinnu sinni og skipta um stöðu og umhverfi.

 

Læsi, tjáning og samskipti á íslensku:

  • Nemendur kynna verkefni sín fyrir samnemendum og kennurum.
  • Nemendur skili ritgerðarvinnu og verkefnum.
  • Nemendur efli með sér skilning á mikilvægi góðrar málvitundar í tengslum við textavinnslu og fleira.
  • Nemendur taki þátt í hópavinnu þar sem reynir á samskipti og tjáningu.

 

Lýðræði og mannréttindi:

  • Áhersla er lögð á að allir nemendur fái að tjá sig og segja sína skoðun.
  • Í hópverkefnum reynir mikið á samvinnu og nemendur læra að taka tillit til mismunandi skoðana.
  • Nemendur læri að bera virðingu fyrir eigin störfum og annarra.