MKÆL4MS02(BA) - Meistaranám - Varmadælur og kælitækni

Undanfari : Sveinspróf í rafvirkjun, rafvélavirkjun eða rafveituvirkjun
Í boði : Haust

Lýsing

Áfangar í pakkavali rafvirkjunar í iðnmeistaranámi eru kenndir hjá Rafmennt.

Í áfanganum kynnast nemendur grundvallartækni varmaflutnings með kælitækni. Farið er yfir varmadælingu sem tækni til hitunar húsa og kælingar rýma s.s. gagnavera og rafbúnaðarrýma þar sem hitamyndun er veruleg. Einnig eru skoðaðir mismunandi valkostir orkugjafa til varmaflutnings, kaldir og heitir. Einnig læra nemendur helstu eðlisfræðihugtök sem tengjast kælitækninni eins og varmaleiðni, varmaflutning, eimun og þéttingu vökva. Þá kynnast nemendur helsta búnaði sem notaður er til frystingar og annars varmaflutnings og virkni hans. Nemendur læra um uppsetningu og viðhald minni kæli- og frystikerfa. Áhersla er lögð á að nemandi þekki hugtökin kælingu og frystingu og að hann viti t.d. til hvers matvæli eru kæld eða fryst.


Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • grunnatriðum í varmafræði (varmadælingar).
  • helstu eðlisfræðihugtökum sem tengjast kælitækni eins og varmaleiðni, varmaflutningi, eimun og þéttingu vökva
  • grundvallarþáttum kælitækninnar
  • uppsetningu og viðhaldi, prófunum og stillingum minni kæli- og frystikerfa
  • grundvallaruppbyggingu, eiginleikum og hlutverki einstakra íhluta kæli- og frystikerfa
  • eiginleikum einstakra kælimiðla og mengunarhættu sem af þeim getur stafað


Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • setja upp minni kælikerfi og sinna viðhaldi, prófunum og stillingum á þeim
  • samsetningu, prófunum og stillingum á kælikerfum


Nemandi skal geta hagnýtt þá þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • tileinka sér nýjungar í kælitækni
  • setja upp, halda við, stilla og prófa minni kæli- og frystikerfi
  • nýta sérhæfða þekkingu sína til að gera helstu mælingar og útreikninga sem tengjast kæli- og frystikerfum
  • sýna frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum sem tengjast kæli- og frystikerfum
  • geta nýtt sér þekkingu sína og leikni tengda kæli- og frystikerfum

 

Grunnþættir menntunar

Læsi, tjáning og samskipti um tölur og upplýsingar:

  • Þjálfa nemendur í að greina upplýsingar.
  • Þjálfa framsetningu og túlkun á tölulegum upplýsingum.


Námshæfni:

  • Nemendur þjálfist í skipulögðum vinnubrögðum og læri að setja sér markmið.
  • Nemendur læri að leita sér upplýsinga um þau málefni sem unnið er með.
  • Nemendur læri að tjá sig og rökstyðja skoðanir sínar t.d. með kynningum á verkefnum.
  • Styrkleikar hvers nemanda fái að njóta sín t.d. í hópavinnu.
  • Nemendur læri að bera ábyrgð á námi sínu og skipuleggja sig. Þeir geti valið sér verkefni og skipulagt í samráði við kennara.


Skapandi hugsun og hagnýting þekkingar:

  • Með mikilli og fjölbreyttri verkefnavinnu þurfa nemendur að vera skapandi og koma með nýjar og ferskar hugmyndir.
  • Nemendur tileinki sér að vinna bæði í hópi og sjálfstætt að verkefnum þar sem unnið er að stofnun eigin fyrirtækis.
  • Verkefni skulu skarast þvert á áfanga og tengja þannig saman í lokaafurð þekkingu frá mörgum fögum.


Jafnrétti:

  • Framfylgja skal jafnréttisstefnu og jafnréttisáætlun skólans.
  • Beita skal fjölbreyttu námsmati og kennsluaðferðum.
  • Allir skulu eiga jafna möguleika á að rækta hæfileika sína á jafnréttisgrundvelli.


Menntun til sjálfbærni:

  • Nemendur skilji mikilvægi þess að skapa samábyrgt samfélag.
  • Nemendur geti tekist á um álitamál og ástundi lýðræðisleg vinnubrögð.
  • Nemendum þekki og virði umhverfi sitt og auðlindir þess.
  • Framfylgt skal umhverfisstefnu skólans.

 

Læsi, tjáning og samskipti á erlendum tungumálum:

  • Nemendur eru hvattir til að afla sér upplýsinga á erlendum vefsíðum í fræðibókum og fleiru.
  • Nemendur kynni sér hvernig leiðbeina má og kynna verklag og reglur fyrir erlendum starfsmönnum í íslenskum iðnfyrirtækjum.

 

Heilbrigði:

  • Nemendur tileinki sér rétta líkamsbeitingu miðað við aðstæður.
  • Nemendur skulu hvattir til að standa upp frá vinnu sinni og skipta um stöðu og umhverfi.

 

Læsi, tjáning og samskipti á íslensku:

  • Nemendur kynna verkefni sín fyrir samnemendum og kennurum.
  • Nemendur skili ritgerðarvinnu og verkefnum.
  • Nemendur efli með sér skilning á mikilvægi góðrar málvitundar í tengslum við textavinnslu og fleira.
  • Nemendur taki þátt í hópavinnu þar sem reynir á samskipti og tjáningu.

 

Lýðræði og mannréttindi:

  • Áhersla er lögð á að allir nemendur fái að tjá sig og segja sína skoðun.
  • Í hópverkefnum reynir mikið á samvinnu og nemendur læra að taka tillit til mismunandi skoðana.
  • Nemendur læri að bera virðingu fyrir eigin störfum og annarra.