FÉLA3HE05 - Félagsfræði - Heilsufélagsfræði
Undanfari : FÉLA2ES05
Í boði
: Alltaf
Lýsing
Framhaldsáfangi þar sem lögð er áhersla á að skoða heilsu og heilbrigði útfrá félagsfræðilegu sjónarhorni. Nemendum verður kennt að beita rannsóknaraðferðum og kenningum með það að markmiði að auka skilning á viðfangsefnum heilsufélagsfræðinnar. Skoðaðar verða fjöldi rannsókna í heilsufélagsfræði með það fyrir augum að gera nemandann læsari á viðfangsefni greinarinnar
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- heilbrigði og lýðheilsu á Íslandi
- tengslum fjölskyldunnar við heilsu og sjúkdóma
- faraldsfræði og rannsóknum sem miða að því að hefta útbreiðslu sjúkdóma
- heilsu í sögulegu ljósi
- tengslum stéttar, stöðu og heilbrigðis
- tengslum þátta eins og t.d. kynhlutverka við heilbrigði
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- skilja mikilvægi heilbrigðra lífshátta og daglegs lífs
- skilja hvernig hægt er að móta líf sitt með tilliti til góðrar heilsu, andleg og líkamleg
- greina þætti í umhverfinu sem kunna að hafa neikvæða áhrif á einstaklinga og hópa
- geta beitt fræðilegum vinnubrögðum
- geta skilið viðfangsefni greinarinnar út frá þeim kenningum og aðferðum sem beitt er innan heilsufélagsfræði
Nemandi skal geta hagnýtt þá þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- geta beitt gagnrýnni hugsun í fræðilegri umræðu sem og í almennri umræðu
- skilja helstu aðferðir greinarinnar og geta nýtt sér kenningar hennar í leik og starfi
Grunnþættir menntunar
Áfanginn hefur sterka tengingu við grunnþáttinn heilbrigði og velferð, en styður jafnframt við læsi, jafnrétti, lýðræði og mannréttindi og félagslega sjálfbærni. Nemendur skoða heilsu, heilbrigði og lýðheilsu út frá félagsfræðilegu sjónarhorni og greina hvernig fjölskylda, stétt, félagsleg staða, kynhlutverk, umhverfi og daglegt líf hafa áhrif á líkamlega, andlega og félagslega heilsu. Með lestri rannsókna, fræðilegri umræðu og greiningu á samfélagslegum áhrifaþáttum heilsu þjálfast nemendur í að meta upplýsingar á gagnrýninn hátt. Áfanginn eflir þannig hæfni þeirra til að taka upplýsta afstöðu til heilbrigðismála, bæði í eigin lífi og í samfélagslegu samhengi.