ENSK3AO05 - Enska - Akademískur orðaforði
Undanfari : ENSK2GA05
Í boði
: Alltaf
Lýsing
Áhersla er áfram lögð á að efla nákvæman skilning. Nemendur vinna með og þjálfa akademískan orðaforða sem hjálpar þeim að skilja flókna og fjölbreytta texta. Nemendur vinna einnig með bókmenntaverk sem dýpka enn skilning þeirra á orðgnótt enskrar tungu og menningu enskumælandi þjóða. Ritun nemenda endurspeglar þessar áherslur og sýnir að þeir geti tjáð sig lipurlega á enskri tungu
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- menningu og þjóðfélagsmótun í enskumælandi löndum
- orðaforða sem nauðsynlegur er til að standast hæfniviðmið þrepsins
- notkun tungumálsins sem er nauðsynleg til að standast hæfniviðmið þrepsins
- orðaforða sem gerir honum kleift að tileinka sér með góðu móti lesefni í áframhaldandi námi og starfi
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- skilja vel sérhæfða texta á sviði sem hann þekkir
- skilja almennt talað mál
- lesa, sér til ánægju og upplýsingar, texta sem gera miklar kröfur til lesandans, ýmist hvað varðar orðaforða, uppbyggingu og myndmál
- halda uppi samræðum
- geta tjáð sig um almenn og persónuleg málefni
- beita ritmálinu í mismunandi tilgangi
Nemandi skal geta hagnýtt þá þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- skilja sér til gagns þegar fjallað er um flókið efni og nýta sér fyrirlestra, umræður og rökræður um efni sem hann hefur áhuga á
- geta lagt gagnrýnið mat á texta
- hagnýta sér fræðitexta og meta heimildir á gagnrýnan hátt
- beita málinu til að geta tekið fullan þátt í umræðum um ýmis mál
- geta flutt vel uppbyggða frásögn, kynningu eða greinargerð og brugðist við fyrirspurnum
- beita rithefðum sem við eiga í textasmíð
- byrja að vinna úr heimildum og skrá á viðurkenndan hátt
- skrifa gagnorðan, skilmerkilegan og vel uppbyggðan texta sem tekur mið af því hver lesandinn er
- skrifa texta með röksemdafærslu
- tjá tilfinningar og nota hugarflugið í rituðu máli
Grunnþættir menntunar
Í enskukennslu eru grunnþættir menntunar samofnir námsefni og kennsluháttum. Læsi, tjáning og samvinna eru þungamiðja námsins þar sem nemendur þjálfa sig í að lesa, skrifa, hlusta og tala á ensku í fjölbreyttu samhengi. Sköpun og gagnrýnin hugsun eru hlutaðeigandi þegar nemendur túlka texta, mynda sér skoðanir og tjá sig á persónulegan hátt. Lýðræðisleg gildi og virðing fyrir fjölbreytileika birtast í umræðum um menningu, samfélag og manngildi í enskumælandi heimi. Stafrænt læsi og miðlamennt eru æfð í gegnum fjölbreyttar verkefnategundir og notkun á fjölbreyttum textategundum.