VIFR2ST05 - Viðskiptafræði - Stjórnun, hugtök og kenningar
Undanfari : Enginn
Í boði
: Alltaf
Lýsing
Kynnt eru grunnhugtök og meginviðfangsefni stjórnunar. Áhersla er lögð á að auka skilning nemenda á mikilvægi stjórnunar, fyrir fyrirtæki og samfélagið í heild. Nemendur fá innsýn í helstu verkefni og hlutverk stjórnenda. Fjallað er um þróun í stjórnunarkenningum og hvernig breytingar í þjóðfélaginu hafa leitt til þess að sífellt meiri áhersla hefur verið lögð á stjórnun sem fræðigrein. Nemendum er kynnt mikilvægi stefnumótunar og markmiðssetningar ásamt því að greina umhverfi stjórnunar. Viðfangsefni áfangans miðar meðal annars að því að undirbúa nemendur fyrir frekara nám í stjórnun, ásamt þátttöku í félags- og atvinnulífi. Kennsla fer fram með fyrirlestrum, umræðutímum og verkefnavinnu nemenda. Áhersla er lögð á raunhæf verkefni og hópavinnu og að nemendur sýni sjálfstæði í vinnubrögðum.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- helstu hlutverkum stjórnunar
- leiðtogahæfni
- sögu stjórnunar sem fræðigreinar og helstu fræðimönnum
- fyrirtækjamenningu
- siðferði skipulagsheilda
- samfélagslegri ábyrgð skipulagsheilda
- umhverfi skipulagsheilda
- breytingastjórnun
- stefnumótun, áætlanagerð og markmiðssetningu
- skipulagi fyrirtækja
- mannauðsstjórnun
- ráðningarferlinu
- þjálfun og umbun starfsmanna
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- beita grunnhugtökum stjórnunar við verkefnavinnu
- ræða helstu kenningar og aðferðir stjórnunar
- vinna raunhæf verkefni um stjórnendur í atvinnulífinu
- vinna saman í hóp
- koma þekkingu sinni á framfæri
- útbúa skipurit
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- beita hugtökum og aðferðum stjórnunar í starfi
- meta siðferðileg álitamál sem varða stjórnun
- heimfæra hugmyndir stjórnunar á eigið líf
- nýta sér hæfni sína til frekara náms
- nýta hæfni sína til þess að taka þátt í atvinnulífinu
- vinna raunhæf verkefni sem stjórnandi
- búa yfir færni í að skilgreina mismunandi stjórnunarstíla
- skilja helstu skipurit
- vera hæfari til að takast á við þá áskorun að taka virkan þátt í atvinnulífi þjóðarinnar
- hafa það sem þarf til að bera til að bæta og efla atvinnulíf landsmanna í framtíðinni
- geta tekið einfaldar stjórnunarákvarðanir
Grunnþættir menntunar
Í þessum áfanga nýta nemendur sér læsi til að öðlast hæfni til að skynja og skilja umhverfi sitt og samfélag á gagnrýninn hátt og taka þátt í að móta það. Nemendur eru virkir þátttakendur í að skapa eigin merkingu og bregðast á persónulegan og skapandi hátt við því sem þeir lesa með hjálp þeirra miðla og tækni sem völ er á. Þeir nýta sér til gagns tölulegar upplýsingar og nota og miðlað upplýsingum á gagnrýninn og skapandi hátt. Í áfanganum birtist heilbrigði og velferð með því að kennari hugi eftir bestu getu að félagslegri vellíðan nemenda með því að tryggja góð samskipti og öryggi innan hópsins. Í áfanganum er lýðræði haft að leiðarljósi og borin er virðing fyrir manngildium hvers og eins og tekið er tillit til áhuga nemenda og ábyrgðar þeirra á eigin námi. Nemendur eru hvattir til að láta sínar skoðanir í ljós og tekur kennari tillit til og hlustar á. Unnið er að því að skapa tækifæri fyrir alla til að þroskast á eigin forsendum, rækta hæfileika sína og lifa ábyrgu lífi í frjálsu samfélagi í anda skilnings, friðar, umburðarlyndis, víðsýnis og jafnréttis. Sköpun er tekin fyrir en lögð eru fyrir verkefni sem byggja á gagnrýninni hugsun nemenda með aðferðum sem opna sífellt nýja möguleika, mótun viðhorfa, gildismats og hæfni. Nemendur hafa tækifæri til að hafa áhrif á skólastarfið s.s. með skipulag og námsmat.