Lýsing
Ýmsir áhrifaþættir í uppeldi verða til umfjöllunar, aðstæður íslenskra barna verða skoðaðar og hvaða úrræði standa þeim til boða sem á þurfa að halda. Fjallað verður um barnalög og barnavernd, ofbeldi og vanrækslu gagnvart börnum, uppeldi barna, svefn barna, ýmsar breytingar og álag í lífi barna og hvaða áhrif þær hafa. Sköpunargleðin fær að njóta sín sem og gagnrýnin hugsun. Kröfur eru gerðar í símatsáfanga um virkni nemenda í umræðum og verkefnavinnu.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- lögum og úrræðum í boði fyrir börn
- áhrifum ofbeldis og vanrækslu á börn
- algengum uppeldisaðferðum
- jákvæðum aga
- svefni barna
- þáttum sem hafa áhrif á álag í lífi barna
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- vinna sjálfstætt og með öðrum
- beita mismunandi aðferðum við að koma þekkingu sinni á framfæri
- meta heimildir og nota þær markvisst
Nemandi skal geta hagnýtt þá þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- tjá sig skipulega í ræðu og riti og taka þátt í umræðum um uppeldisfræði
- geta nýtt sér bæði íslenskar og erlendar heimildir og nota þær á réttan hátt
- ástunda viðurkennd vinnubrögð og taka ábyrgð á vinnu sinni
Grunnþættir menntunar
Læsi: Í uppeldisfræðiáföngum er unnið með læsi þar sem nemendur lesa, greina og túlka texta um uppeldi, þroska, samskipti og menntun. Þeir þjálfast í að nota hugtök greinarinnar og miðla þekkingu sinni skipulega.
Sjálfbærni: Í uppeldisfræðiáföngum tengist sjálfbærni við ábyrgð, uppeldi og samfélagslega þátttöku. Nemendur skoða til dæmis hvernig gildi, samskipti og uppeldisaðferðir geta haft áhrif á börn, fjölskyldur og samfélag til framtíðar.
Heilbrigði og velferð: Í uppeldisfræðiáföngum er eftir því sem við á fjallað um þætti sem hafa áhrif á líðan, þroska, öryggi, sjálfsmynd og félagsleg tengsl barna og ungmenna. Áhersla er á hvernig styðja má við velferð þeirra.
Lýðræði og mannréttindi: Í uppeldisfræðiáföngum er unnið með lýðræði og mannréttindi í tengslum við réttindi barna, virðingu, ábyrgð, þátttöku og tjáningu. Nemendur skoða mikilvægi þess að börn alist upp í umhverfi sem byggir á jafnræði.
.Jafnrétti: Í uppeldisfræðiáföngum er fjallað um jafnrétti með því að skoða hvernig uppeldi, menning, kynhlutverk og félagslegar aðstæður geta mótað tækifæri og sjálfsmynd barna.
Sköpun: Í uppeldisfræðiáföngum fá nemendur tækifæri til að vinna skapandi með viðfangsefni áfangans. Þeir geta til dæmis tengt fræðilega þekkingu við raunverulegar uppeldisaðstæður, unnið verkefni, sett fram lausnir og miðlað hugmyndum sínum fjölbreytt.