Lýsing
Í áfanganum eru kennd grunnatriði trésmíða með áherslu á þekkingu og færni í notkun trésamsetningar, límingar, pússningar og yfirborðsmeðferðar. Haldið er áfram umfjöllun um efnisfræði tréiðna þar sem ítarlegar er farið í ýmsa eðliseiginleika viðar, flokkun, merkingar og þurrkun. Nemendur kynnast notkun algengra tegunda viðarlíms og yfirborðsefna, vinnubrögðum og öryggisþáttum. Í áfanganum læra nemendur grunnatriði í véltrésmíði. Fjallað er um algengustu trésmíðavélar sem notaðar eru í tré- og byggingaiðnaði, meðferð þeirra og viðhald. Farið er yfir helstu notkunarmöguleika einstakra véla og tækja, stillingar, fyrirbyggjandi viðhald, hlífar, hjálpartæki, líkamsbeitingu og öryggismál og nemendur fá innsýn í að velja og skipta um helstu eggjárn. Lögð er áhersla á notkunarleiðbeiningar og merkingar á tækjum og búnaði. Mikilvægt er að nemendur læri um ábyrgð sína í umgengni við trésmíðavélar og að takist ekki á við vélavinnu án fullnægjandi undirbúnings, hjálpar- og öryggisbúnaðar. Áfanginn er bæði kenndur á námsbrautum fyrir húsasmiði og húsgagnasmiði.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- vinnuaðstöðu og vinnuumhverfi
- umgengni, ábyrgð og notkun á algengustu trésmíðavélum
- öryggisþáttum og viðhaldi trésmíðavéla
- vinnuaðstöðu og vinnuumhverfi tiltekinna trésmíðavéla
- smíðisfestingum sem notaðar eru í trésmíði
- einstökum samsetningum og notkunarsviði þeirra
- þvingum og vinnuaðferðum við samsetningar í trésmíði
- algengustu gerðum og notkunarsviðum viðarlíms
- nöglum og skrúfum og notkun þeirra í trésmíði
- öryggisreglum fyrir meðferð og notkun einstakra límtegunda
- grunnatriðum í yfirborðsmeðferð smíðaviðar og plötuefnis
- helstu yfirborðsefnum á tré og notkunarsviðum þeirra
- virkni og notkunarsviðum einstakra trésmíðavéla
- uppbyggingu og notkun algengustu trésmíðavéla
- algengustu slysavöldum og slysum í véltrésmíði og afleiðingum þeirra
- öryggisreglum og öryggisbúnaði sem notaður er í véltrésmíði
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- nota áhöld til mælinga og uppmerkinga
- nota mismunandi tegundir verkfæra, véla og efna
Nemandi skal geta hagnýtt þá þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- aðlaga sig að mismunandi vinnuumhverfi
- velja smíðavið fyrir einstök verkefni og rökstyðja valið
- flokka timbur með hliðsjón af leiðbeiningum
- viðhalda og yfirfara ástand öryggisþátta trésmíðavéla
- undirbúa verk fyrir yfirborðsmeðferð með pússningu eða slípun
- bera yfirborðsefni á tré með mismunandi hætti
- beita öryggisreglum og öryggisráðstöfunum við yfirborðsmeðferð
- smíða einfalda nytjahluti eftir teikningum og verklýsingum
- beita vinnuskipulagi í trésmíði og fylgja aðgerðalista við vinnu
- efna niður og vinna tré í höndum fyrir endanlega samsetningu
- ganga úr skugga um gæði smíðishluta fyrir samsetningu
- nota þvingur markvisst til að fá smíðishlut réttan í límingu
- mæla og taka úr fyrir smíðisfestingum og setja endanlega upp
- velja heppilegar trésmíðavélar með hliðsjón af verkefni
- velja snúnings- og mötunarhraða fyrir trésmíðavélar
- nota algengustu trésmíðavélar til að efna og forma
- athuga rétta virkni og öryggisbúnað fyrir gangsetningu véla
- nota viðeigandi öryggisbúnað í hverju tilviki til að fyrirbyggja slys
- nota rétta staðsetningu og líkamsbeitingu við vélavinnu
- hreinsa og framkvæma fyrirbyggjandi viðhald á trésmíðavélum
Grunnþættir menntunar
Í húsasmíði eru grunnþættir menntunar órjúfanlegur hluti af verklegu og bóklegu námi. Undirstaða faglegra vinnubragða er fjölþætt læsi, þar sem reynir á tæknilæsi á byggingauppdrætti, talnalæsi við efnistöku og gagnrýnið upplýsingalæsi. Námið hvetur til sjálfbærni með áherslu á umhverfisvitund, lágmörkun efnissóunar og skynsamlega nýtingu auðlinda. Jafnframt er heilbrigði og velferð í forgrunni í gegnum virka vinnuvernd, áherslu á rétta líkamsbeitingu og sterka öryggismenningu. Á verkstæðinu er unnið í anda lýðræðis, mannréttinda og jafnréttis; nemendur temja sér samvinnu, bera ábyrgð á eigin vinnubrögðum og taka þátt í jákvæðri vinnustaðamenningu þar sem öll fá jöfn tækifæri á eigin forsendum. Loks er húsasmíðin sjálf rík af sköpun, þar sem nemendur sameina handverk og skapandi lausnaleit til að takast á við krefjandi útfærslur, reisa mannvirki og efla um leið eigin fagmennsku.
- Læsi: Lögð er áhersla á læsi í víðum skilningi, þar sem nemendur þjálfast í að lesa úr og túlka teikningar, reikna út efnisnotkun, skilja verklýsingar og setja sig inn í lög og byggingarreglugerðir.
- Sjálfbærni: Nám og starfshættir mótast af umhverfisvitund og skynsamlegri nýtingu auðlinda. Nemendur þjálfast markvisst í að lágmarka efnissóun, flokka byggingarúrgang og skilja vistspor mannvirkjagerðar.
- Heilbrigði og velferð: Öryggi og vinnuvernd eru í forgrunni á vinnusvæði. Stuðlað er að vellíðan og líkamlegu heilbrigði með áherslu á rétta líkamsbeitingu við smíðar, örugga vélanotkun og samvinnu.
- Lýðræði og mannréttindi: Skólabragurinn byggist á samvinnu á verkstæðinu þar sem borin er virðing fyrir manngildi og skoðunum hvers og eins. Nemendur eru hvattir til að bera sjálfstæða ábyrgð á eigin námi og vinnubrögðum.
- Jafnrétti: Öllum nemendum eru sköpuð jöfn tækifæri til að rækta hæfileika sína og færni. Markvisst er unnið að því að opna augu nemenda fyrir kynskiptum vinnumarkaði í iðngreinum og stuðlað að jafnræði á vinnustað.
- Sköpun: Verkleg kennsla krefst stöðugrar gagnrýninnar hugsunar og skapandi lausnaleitar við raunhæf verkefni, allt frá hönnun og teikningu til tré- og mótasmíði. Hvatt er til frumkvæðis og litið á mistök sem dýrmæt tækifæri til að auka fagþekkingu.