ÞÝSK1ÞO05 - Þýska - Þýska 1
							
																																
	
	
													
											
							Undanfari : Enginn
						
																
							Í boði
							: Alltaf
						
														 
					
		
					
				Lýsing
				Megináhersla er lögð á að nemendur tileinki sér undirstöðuatriði tungumálsins. Nemendur eru þjálfaðir í réttum framburði, lestri, hlustun, tali og ritun. Einföld málfræðiatriði eru kynnt og útskýrð. Áhersla lögð á uppbyggingu orðaforða og viðeigandi málsnið. Umfjöllun um Þýskaland, þýska menningu og þýskumælandi málsvæði. Efni á netinu kynnt og ýmiskonar annað ítarefni, s.s. tónlist og myndefni
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- þeim orðaforða sem þarf til að geta lesið, hlustað á, skilið og rætt um einföldustu atriði
- helstu grundvallarþáttum þýsks málkerfis, s.s. framburði, tónfalli og einfaldri setningaskipan
- Þýskalandi og þýskum málsvæðum ásamt einstökum þáttum þýskrar menningar
- einföldum samskiptum og tjáningu í mæltu og rituðu máli
 
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- skilja talað mál um kunnugleg efni þegar talað er hægt og skýrt
- geta fylgt einföldum fyrirmælum og skilið kveðjur og kurteisisávörp
- lesa einfalda texta sem innihalda algengan orðaforða sem tengjast nemandanum, fjölskyldu, umhverfi og áhugamálum og daglegu lífi
- taka þátt í einföldum samræðum um efni sem hann þekkir og beita málsniði við hæfi
- segja á einfaldan hátt frá sjálfum sér, fjölskyldu, umhverfi og áhugamálum
- geta ritað stutta, einfalda texta í nútíð
 
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- skilja talað mál um kunnuglegt efni ef talað er hægt og skýrt
- taka þátt í einföldum samræðum og nota viðeigandi málsnið
- kynna sjálfan sig á einfaldan hátt
- rita stutta, einfalda texta um kunnuglegt efni