STÆR3HI05 - Stærðfræði - Heildun og diffurjöfnur
Undanfari : STÆR3DF05
Í boði
: Alltaf
Lýsing
Byrjað er á að rifja upp diffrun og línulega nálgun í punkti. Unnið með stofnföll falla, aðferðir svo sem innsetningaraðferð, hlutheildun og liðun í stofnbrot. Óákveðið og ákveðið heildi er fundið. Rúmmál snúða og diffurjöfnur af fyrsta stigi teknar fyrir og þrepasannanir æfðar
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- tengslum diffrunar og heildunarstofnföllum falla og heildunar
- helstu reglum um ákveðið og óákveðið heildi
- ýmsum aðferðum til að finna heildi, s.s. innsetningu, hlutheildun og liðun í stofnbrot
- deildajöfnum af fyrsta stigi
- þrepasönnunum
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- finna stofnföll
- heilda með aðferðum eins og innsetningu, hlutheildun og liðun í stofnbrot
- beita reglum um ákveðið heildi til að finna flatarmál og rúmmál
- nota fyrsta stigs deildajöfnur til að leysa hagnýt dæmi
- sanna tilgátur með þrepun
- beita hjálpartækjum og forritum við lausn stærðfræðilegra viðfangsefna
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- geta skráð lausnir sínar skipulega og skilmerkilega, skipst á skoðunum við aðra um þær og útskýrt á viðeigandi hátt
- beita skipulegum aðferðum við leit að lausnum og geta útskýrt aðferðir sínar
- gera greinarmun á nauðsynlegum og nægjanlegum skilyrðum fyrir lausnum verkefna
- beita gagnrýnni og skapandi hugsun við lausn verkefna og þrauta
- fylgja og skilja röksemdafærslur í mæltu máli og í texta
- átta sig á tengslum ólíkra aðferða við framsetningu hugmynda og velja aðferð við hæfi
- hagnýtt sér stærðfræðilega þekkingu sína til ákvarðanatöku í sérhæfðum verkefnum
- takast á við stærðfræðileg verkefni þar sem nota þarf ólíkar aðferðir samtímis eða hverja á eftir annarri
Grunnfærni menntunar
Í stærðfræðikennslu fléttast grunnþættirnir saman á margvíslegan hátt:
- Læsi er hornsteinn námsins. Nemendur þjálfast í að lesa úr tölulegum gögnum, túlka niðurstöður og miðla lausnum á skýran og skipulegan hátt, en þetta tölulæsi er grunnfærni sem allir þurfa í nútímasamfélagi.
- Sköpun á sér stað þegar nemendur glíma við opin verkefni, þurfa að velja á milli aðferða og leita að eigin lausnarferlum. Þar er gert ráð fyrir að mistök séu hluti af námsferlinu og nemendur hvattir til þess að nota gagnrýna hugsun.
- Sjálfbærni kemur fram þegar stærðfræðilegri hugsun er beitt á raunveruleg viðfangsefni sem gefur nemendum tækifæri til að skilja hvernig stærðfræðin tengist ábyrgð þeirra gagnvart samfélagi og umhverfi.
- Jafnrétti endurspeglast í kennsluháttum sem tryggja að allir nemendur, óháð bakgrunni eða reynslu, fái tækifæri til að njóta styrkleika sinna og uppgötva eigin samband við námsgreinina.