STÆR3FT05 - Stærðfræði - Tvinntölur og fylki
Undanfari : STÆR3HI05
Í boði
: Alltaf
Lýsing
Unnið er með breiðbogaföll, diffrun og heildun þeirra. Helstu reglur varðandi þau eru sannaðar. Borin saman pólhnitakerfið og rétthyrnda hnitakerfið og jöfnur umritaðar frá öðru kerfinu yfir í hitt. Tvinntölur kynntar og unnið með helstu reiknireglur sem þar gilda. Fylkjareikningur kynntur og notkun hans, t.d. hvernig fundin er besta lína og hvernig stór jöfnuhneppi eru leyst með fylkjareikningi
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- breiðbogaföllum
- pólhnitakerfinu
- tvinntölum
- 2. stigs diffurjöfnum
- fylkjareikningi
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- diffra og heilda breiðbogaföll
- nota pólhnit
- geti notað helstu reiknireglur fylkjareiknings
- notað tvinntölur
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- orða kunnáttu sýna og útskýra niðurstöður útreikninga sinna í samræðum um efnið við kennara og bekkjarfélaga
- skilja merkingu og tengsl hugtaka í námsefninu og geta unnið með þau
- greina frá hvar og hvernig námsþættir áfangans eru nýttir í raunverulegum aðstæðum
Grunnfærni menntunar
Í stærðfræðikennslu fléttast grunnþættirnir saman á margvíslegan hátt:
- Læsi er hornsteinn námsins. Nemendur þjálfast í að lesa úr tölulegum gögnum, túlka niðurstöður og miðla lausnum á skýran og skipulegan hátt, en þetta tölulæsi er grunnfærni sem allir þurfa í nútímasamfélagi.
- Sköpun á sér stað þegar nemendur glíma við opin verkefni, þurfa að velja á milli aðferða og leita að eigin lausnarferlum. Þar er gert ráð fyrir að mistök séu hluti af námsferlinu og nemendur hvattir til þess að nota gagnrýna hugsun.
- Sjálfbærni kemur fram þegar stærðfræðilegri hugsun er beitt á raunveruleg viðfangsefni sem gefur nemendum tækifæri til að skilja hvernig stærðfræðin tengist ábyrgð þeirra gagnvart samfélagi og umhverfi.
- Jafnrétti endurspeglast í kennsluháttum sem tryggja að allir nemendur, óháð bakgrunni eða reynslu, fái tækifæri til að njóta styrkleika sinna og uppgötva eigin samband við námsgreinina.