STÆR2VH05 - Stærðfræði - Vigrar og hornaföll
Undanfari : STÆR2AH05
Í boði
: Alltaf
Lýsing
Viðfangsefni áfangans eru t.d. vigrar: samlagning, frádráttur og margfeldi. Unnið með hornaföll, einingahringinn, hornafallareglur og lausn hornafallajafna. Keilusnið eru tekin fyrir: hringur, sporbaugur og breiðbogi. Mismunandi framsetning á jöfnu beinnar línu og einnig er unnið með almenna jöfnu línu og stikun línu
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- vigrum í sléttum fleti og helstu eiginleikum þeirra
- reiknireglum sem gilda um vigra
- hornaföllum og reglum um notkun þeirra í þríhyrningum og lausn í hornafallajafna
- keilusniðum, s.s. hring, sporbaug og breiðboga
- stikun og almennri jöfnu línu
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- beita helstu reiknireglum vigurreiknings, s.s. að finna hnit vigra, lengd þeirra, innfeldi tveggja vigra og horn milli vigra
- nota hornaföll til að finna hliðarlengdir, horn og flatarmál þríhyrninga
- einfalda og umrita stæður sem innihalda hornaföll og leysa hornafallajöfnur
- finna miðju og radíus hrings út frá jöfnu hans og öfugt, og vinna á samsvarandi hátt með jöfnur, sporbauga og breiðboga
- finna stikun og almenna jöfnu línu milli tveggja punkta og breyta almennri jöfnu yfir í stikun og öfugt
- finna stikun hrings
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- setja margskonar verkefni upp með táknmáli stærðfræðinnar og leysa þau
- beita skipulögðum aðferðum við lausn verkefna og rökstyðja aðferðir sínar
- skrá lausnir sínar skipulega og skiptast á skoðunum um þær við aðra
- átta sig á tengslum aðferða við framsetningu
- beita frumkvæði, innsæi og frumleika við lausn verkefna
Grunnfærni menntunar
Í stærðfræðikennslu fléttast grunnþættirnir saman á margvíslegan hátt:
- Læsi er hornsteinn námsins. Nemendur þjálfast í að lesa úr tölulegum gögnum, túlka niðurstöður og miðla lausnum á skýran og skipulegan hátt, en þetta tölulæsi er grunnfærni sem allir þurfa í nútímasamfélagi.
- Sköpun á sér stað þegar nemendur glíma við opin verkefni, þurfa að velja á milli aðferða og leita að eigin lausnarferlum. Þar er gert ráð fyrir að mistök séu hluti af námsferlinu og nemendur hvattir til þess að nota gagnrýna hugsun.
- Sjálfbærni kemur fram þegar stærðfræðilegri hugsun er beitt á raunveruleg viðfangsefni sem gefur nemendum tækifæri til að skilja hvernig stærðfræðin tengist ábyrgð þeirra gagnvart samfélagi og umhverfi.
- Jafnrétti endurspeglast í kennsluháttum sem tryggja að allir nemendur, óháð bakgrunni eða reynslu, fái tækifæri til að njóta styrkleika sinna og uppgötva eigin samband við námsgreinina.