STÆR1PH03 - Stærðfræði - Með áherslu á fjármálalæsi (ST)
							
																																
	
	
													
											
							Undanfari : Enginn
						
																
							Í boði
							: Alltaf
						
														 
					
		
					
				Lýsing
				Ný menntastefna er höfð til grundvallar og grunnþættir menntunar eru hafðir að leiðarljósi. Áhersla verður á fjármálalæsi í víðu samhengi. Farið verður yfir helstu persónulegu útgjöld í lífi ungs fólks, heimilisbókhald og gildi þess að halda utan um eigin fjármál. Stefnt er að því að viðhalda og byggja ofan á þann grunn sem nemandi hefur þegar tileinkað sér.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- mikilvægi réttinda og skyldna neytenda
- mikilvægi þess að hafa yfirsýn yfir eigin útgjöld og tekjur
- hvernig nýta má greiðslukort
- að stundum þarf að forgangsraða í fjármálum
 
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- lesa á launaseðil eða tryggingaryfirlit
- byggja upp sparnað á einfaldan og hagkvæman hátt
- standa við þær skuldbindingar sem viðkomandi hefur gert
 
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- halda utan um eigin fjármál að öllu eða einhverju leiti
- átta sig á tengingunni milli réttinda og skyldna
 
Áfangi á starfsbraut