Lýsing
Í áfanganum kynnist nemandinn lögmálum myndbyggingar og rannsakar hvernig eðli myndflatar breytist eftir því á hvaða hátt línur og form skipta honum upp. Nemandinn þjálfar sig í óhlutbundinni myndgerð með það að markmiði að ná fram mismunandi áhrifum á tvívíðan flöt en einnig í þrívídd. Grundvallaratriði í meðferð lita eru einnig viðfangsefni áfangans og kannar nemandinn samspil þeirra, virkni og áhrif. Nemandinn þjálfast í að blanda liti og beita þeim á markvissan hátt. Hann þjálfast í notkun margvíslegra efna og áhalda við rannsóknir sínar. Nemandinn kynnist verkum nokkurra listamanna og hönnuða í tengslum við verkefnavinnu. Samhliða henni þjálfast hann einnig í notkun grunnhugtaka í lita- og formfræði.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- grunnhugtökum í lita og formfræði
- ólíkum áhrifum lína og forma á mismundandi stöðum í myndfleti
- mismunandi áhrifum og vægi lita
- blöndun og beitingu ljós- og efnislita
- klassískum fegurðarlögmálum og notkun þeirra í myndlist, hönnun og byggingarlist
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- beita litum og formum til að ná fram mismunandi áhrifum
- nota grunnhugtök í lita og formfræði
- nota mismunandi efni og blanda liti
- nota verk nokkurra myndlistamanna og hönnuða sem innblástur fyrir eigin vinnu
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- rannsaka óhlutbundna myndbyggingu
- nýta grundvallaratriði í myndbyggingu, lita og formfræði til að tjá eigin hugmyndir
- rökstyðja skoðanir sínar um málefni sem tengjast mismunandi merkingu lita, forma og efnis
- nýta og meðhöndla mismunandi efnistegundir bæði í tvívíðum og þrívíðum verkum
Grunnþættir menntunar
Listgreinalæsi er hæfni til að skilja, skapa, meta og tjá sig í gengum listir eins og tónlist, myndlist, leiklist og dans. Það felur í sér að túlka listir og nota skapandi tjáningu.
Sjálfbærni í listgreinum felst í að skapa og vinna með efni og hugmyndir á ábyrgan hátt með tilliti til umhverfis, samfélags og menningar.
Heilbrigði og velferð í listgreinum felst í að efla líðan, sjálfstraust og tjáningu með skapandi vinnu og þátttöku í listum.
Lýðræði og mannréttindi í listgreinum felast í að allir fái að tjá skoðanir sínar, virða aðrar og taka þátt í skapandi starfi á jafnréttisgrundvelli.
Jafnrétti í listgreinum felst í að allir hafi sömu tækifæri til þátttöku, tjáningar og sköpunar óháð kyni, uppruna eða getu.
Sköpun í listgreinum felst í að sýna frumkvæði, nota hugmyndaflug, skapa nýjar hugmyndir og tjá sig á persónulegan og skapandi hátt.