SÁLF3KV05 - Sálfræði - Kvikmyndasálfræði

Undanfari : FÉLV1IN05
Í boði : Alltaf

Lýsing

Nemendur kynnast sálfræðilegum veruleika út frá kvikmyndum. Mismunandi tegundir kvikmynda verða skoðaðar með það að leiðarljósi að öðlast aukinn skilning á sálfræðilegum þemum og geðrænum vandamálum. Nemendur vinna rannsóknarvinnu til að meta hversu vel mynd nær að kynna þau sálfræðilegu þemu sem hún fæst við og hversu raunhæfa mynd kvikmyndin gefur. Með linsu kvikmyndanna er skoðaðar geðraskanir, meðferðarúrræði, þroski, kynhlutverk, staðalmyndir, fordómar, heilaskaði o.fl.


Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • helstu kvikmyndum sem taka af alvöru á sálfræðilegum málum
  • nokkrum helstu tegundum kvikmynda og þeirri sálfræði sem þar er á bakvið
  • nokkrum grunnþáttum kvikmyndalistarinnar, sérstaklega handritum, hlutverkum og leikstíl
  • umfangi þess vandamáls sem kennt er hverju sinni


Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • greina sálfræðileg viðfangsefni í kvikmyndum
  • bera kvikmyndir saman út frá sálfræðilegri nálgun þeirra
  • finna fleiri kvikmyndir sem kynna sama þema og tekið er fyrir í áfanganum
  • gagnrýna það hvernig kvikmyndir mistúlka sálfræðileg viðfangsefni


Nemandi skal geta hagnýtt þá þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • meta sérstöðu kvikmyndamiðilsins
  • aðgreina ólíkar tegundir kvikmynda út frá sálfræðilegum þáttum
  • leggja mat á gæði mynda sem metið er með umræðum um rannsóknarvinnu
  • yfirfæra yfir á aðrar myndir ákveðin sálfræðileg þemu
  • vega og meta það sem er rétt og rangt um sálfræðileg viðfangsefni í kvikmyndum

 

Grunnþættir menntunar

Læsi: Í sálfræðiáföngum er unnið með læsi þannig að nemendur lesa, greina og túlka texta, hugtök, rannsóknir og gögn í tengslum við viðfangsefni áfangans. Þeir þjálfast í gagnrýnni hugsun og að miðla þekkingu á skýran hátt.
Sjálfbærni: Í sálfræðiáföngum tengist sjálfbærni ábyrgð einstaklingsins gagnvart sjálfum sér, öðrum og samfélaginu. Nemendur skoða til dæmis hvernig viðhorf, gildi, hegðun og ákvarðanataka geta haft áhrif á einstaklinga og samfélag.
Heilbrigði og velferð: Í sálfræðiáföngum er eftir því sem við á fjallað um þætti sem tengjast andlegri, félagslegri og líkamlegri velferð. Þar má til dæmis skoða sjálfsmynd, tilfinningar, streitu, þroska, samskipti, hegðun og líðan.
Lýðræði og mannréttindi: Í sálfræðiáföngum er unnið með lýðræði og mannréttindi í gegnum umræður um mannlega hegðun, samskipti og ólík sjónarmið. Nemendur þjálfast í að hlusta, taka þátt í umræðum, rökstyðja skoðanir og bera virðingu fyrir öðrum.
.Jafnrétti: Í sálfræðiáföngum er fjallað um jafnrétti með því að skoða hvernig einstaklingar mótast af umhverfi sínu og samfélagslegum aðstæðum. Þar er til dæmis skoðað áhrif kyns, menningar, félagslegrar stöðu og annarra þátta á líðan og tækifæri.
Sköpun: Í sálfræðiáföngum fá nemendur tækifæri til að vinna skapandi með viðfangsefni áfangans, eftir því sem við á. Nemendur tengja fræðileg hugtök við raunveruleg dæmi, settar fram spurningar, unnin verkefni og miðlað niðurstöðum á fjölbreyttan hátt.