RLTK3RB05 - Raflagnateikning 2
Undanfari : RLTK2RB05
Í boði
: Haust
Lýsing
Nemendur öðlist vald á teikningalestri á stærri neysluveitum s.s þjónustu- og iðnaðarveitum allt að 200 Amper. Þá læra nemendur að teikna slíkar veitur; teikna sniðmyndir af gegnumtökum, afstöðumyndir auk grunnmynda. Lögð er áhersla að nemendur læri að magntölu- og kostnaðartaka ofangreindar veitur. Tölvutæknin er nýtt við gerð raflagnateikningana seinni hluta áfangans.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- íslenskum staðali um raflagnateikningar fyrir neysluveitur allt að 200 A
- heitum og hugtökum raflagnateikninga
- magntöku og kostnaðartöku raflagna
- helstu teikniforritum
- öllum almennum og sértækum teiknitáknum
- teiknireglurum og staðalákvæðium varðandi þurra-, raka– og rykuga staði
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- lesa úr raflagnateikningum
- teikna í ofangreindar neysluveitur
- beita tölvuforriti við gerð raflagnateikninga
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- velja og ákvarða efni fyrir raflagnir í öllum neysluveitum
- nýta sér minnst eitt teikniforriti sem notað er við gerð teikninga
- velja og ákvarða búnað og raflagnaefni fyrir allar neysluveitur
Grunnþættir menntunar
Í þessum áfanga er unnið markvisst að því að efla faglæsi nemenda á táknkerfi, teikningar og tæknilegar upplýsingar. Lögð er rík áhersla á sköpun og lausnamiðaða hugsun þar sem nemendur hagnýta þekkingu sína í raunhæfum verkefnum. Sjálfbærni og fagleg vinnubrögð eru fléttuð inn í námið með áherslu á skynsamlega nýtingu efnis og varanlegar lausnir. Öryggi er ætíð í forgrunni til að tryggja heilbrigði og velferð í vinnuumhverfinu. Lýðræði og mannréttindi birtast í því að ríkt samráð er haft við nemendur; þeim er tryggt rými til að veita ábendingar, eiga uppbyggilegt samtal við kennara um tímasetningar á verkefnum og prófum. Loks er jafnrétti lagt til grundvallar í öllu starfi, þar sem öllum eru tryggð jöfn tækifæri til að dafna og eflast sem fagaðilar í hvetjandi námsumhverfi.