RLTK2RB05 - Raflagnateikning 1
Undanfari : Enginn
Í boði
: Haust
Lýsing
Megin áhersla áfangans felur í sér að nemendur tileinki sér lestur og teikningu raflagnateikninga. Þeir fá þjálfun í að teikna og lesa úr raflagnateikningum og lögð áhersla á lagnir að og með 63 Amper. Farið verður í staðalákvæði og öryggisþætti við frágang raflagnateikninga. Nemendur læra að rissa teikningu af raflögn. Þá er þeim kennt að gera magntöluskrá og meta kostnað við lagningu raflagna samkvæmt raflagnateikningu.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- reglum um blaðstærð fyrir teikningar, mælikvarða þeirra og teikniáhöld
- íslenskum staðali um raflagnateikningar fyrir smærri neysluveitur að og með 63 A
- heitum og hugtökum raflagnateikninga
- magn- og kostnaðartöku raflagna
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- lesa úr raflagnateikningum
- nýta sér hugtök og heiti sem nota þarf við gerð raflagnateikninga
- nýta sér staðlaákvæði er lúta að hönnun raflagnateikninga
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- lesa allar nauðsynlegar upplýsingar úr raflagnateikninu svo hann geti lagt raflögn eftir þeim
- velja og ákvarða efni fyrir raflagnir í neysluveitum að og með 63 A
- meta magn og kostnað við við ofangreindar raflagnir
- framfylgja ákvæðum staðals við gerð raflagnateikninga
- rissa teikningu að smærri neysluveitu s.s. fyrir íbúð og sumarhús með teiknireglur og staðalákvæði að leiðarljósi
Grunnþættir menntunar
Í þessum áfanga er unnið markvisst að því að efla faglæsi nemenda á táknkerfi, teikningar og tæknilegar upplýsingar. Lögð er rík áhersla á sköpun og lausnamiðaða hugsun þar sem nemendur hagnýta þekkingu sína í raunhæfum verkefnum. Sjálfbærni og fagleg vinnubrögð eru fléttuð inn í námið með áherslu á skynsamlega nýtingu efnis og varanlegar lausnir. Öryggi er ætíð í forgrunni til að tryggja heilbrigði og velferð í vinnuumhverfinu. Lýðræði og mannréttindi birtast í því að ríkt samráð er haft við nemendur; þeim er tryggt rými til að veita ábendingar, eiga uppbyggilegt samtal við kennara um tímasetningar á verkefnum og prófum. Loks er jafnrétti lagt til grundvallar í öllu starfi, þar sem öllum eru tryggð jöfn tækifæri til að dafna og eflast sem fagaðilar í hvetjandi námsumhverfi.