RATM2GB05 - Rafeindatækni og mælingar 2
Undanfari : RATM2GA05
Í boði
: Haust
Lýsing
Áfanginn er framhald af RATM2GR05 og er hér haldið áfram að fjalla um BJT transistora. Þeir eru nú skoðaðir sem magnarar í mismunandi tengingum. Einnig er farið í aðra hálfleiðaraíhluti svo sem díak triak og týristor og virkni þeirra og notkun skoðuð. Nemendur kynnast einnig FET - transistorum og aðgerðamögnurum í þessum áfanga, helstu reikningum og notkunarmöguleikum þeirra. Nemendur gera mælingar bæði með mælitækjum og hermiforriti.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- hvernig hægt er að nota BJT transistora sem magnara og geta reiknað út helstu stærðir í þeim og framkvæmt mælingar
- hvernig Diak, Triak og Tyristor virka, tákn og helstu notkunarmöguleika
- táknum og DC-reikningum varðandi FET transistora
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- framkvæma alla helstu reikninga varðandi BJT transistora bæði AC og DC
- framkvæma DC-reikninga í rásum með FET-transistorum
- framkvæma mælingar á rásum með hinum ýmsu hálfleiðaraíhlutum
- reikna mögnun í aðgerðamagnararásum
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- tengja eftir teikningu allar helstu gerðir magnara með BJT-transistorum og framkvæma á þeim reikninga og mælingar bæði hvað varðar AC-og DC
- tengja eftir teikningu magnara með FET-transistorum og gera á honum DC-reikninga og mælingar
- nýta sér hermiforrit við gerð mælinga og sett niðurstöður mælinga fram í skýrslu
- geta tengt og framkvæmt mælingar á magnararás með aðgerðarmagnara
- geta tengt eftir teikningu og framkævmt mælingar á rásum með öðrum hálfleiðaraíhlutum svo sem diak, triak og týristor
Grunnþættir menntunar
Í þessum áfanga er unnið markvisst að því að efla faglæsi nemenda á táknkerfi, teikningar og tæknilegar upplýsingar. Lögð er rík áhersla á sköpun og lausnamiðaða hugsun þar sem nemendur hagnýta þekkingu sína í raunhæfum verkefnum. Sjálfbærni og fagleg vinnubrögð eru fléttuð inn í námið með áherslu á skynsamlega nýtingu efnis og varanlegar lausnir. Öryggi er ætíð í forgrunni til að tryggja heilbrigði og velferð í vinnuumhverfinu. Lýðræði og mannréttindi birtast í því að ríkt samráð er haft við nemendur; þeim er tryggt rými til að veita ábendingar, eiga uppbyggilegt samtal við kennara um tímasetningar á verkefnum og prófum. Loks er jafnrétti lagt til grundvallar í öllu starfi, þar sem öllum eru tryggð jöfn tækifæri til að dafna og eflast sem fagaðilar í hvetjandi námsumhverfi.