RATM2GA05 - Rafeindatækni og mælingar 1
Undanfari : RAFM1GA05
Í boði
: Haust
Lýsing
Áfanginn fjallar um hálfleiðara. Þá sérstaklega helstu gerðir af díóðum (tvistum), virkni þeirra og notkunarmöguleika. Farið er í hvernig nota má díóður í afriðun og kenndar nokkrar leiðir til að umbreyta AC í DC. Einnig er farið í grunnvirkni transistors og hvernig hann er forspenntur og farið í DC- reikninga transistors. Gert er ráð fyrir að nemendur læri einnig á helstu mælitæki svo sem fjölsviðsmæli og sveiflusjá auk þess að nota hermiforrit við mælingar á rásum.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- teiknitáknum díóða og Bjt transistora
- virkni díóða og Bjt transistora
- helstu gerum afriðla og virkni þeirra
- í hvað þessir íhlutir eru helst notaðir
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- reikna einfaldar rásir með díóðum og transistorum
- reikna út DC spennu á mismunandi afriðlum
- teikna einfaldar rafeindarásir
- notkun helstu mælitækja sem notuð eru í rafeindatækni
- nota hermiforrit til mælinga á rafeindarásum
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- hanna einfaldar rafeindarásir með díóðum og transistorum
- gera mælingar á þessum rásum og geta reiknað þær til samanburðar á mældum niðurstöðum
- geta skilað af sér skýrslu um mælingar á rásum
- geta framkvæmt mælingar til að ganga úr skugga um hvort íhlutir eru í lagi eða ekki
Grunnþættir menntunar
Í þessum áfanga er unnið markvisst að því að efla faglæsi nemenda á táknkerfi, teikningar og tæknilegar upplýsingar. Lögð er rík áhersla á sköpun og lausnamiðaða hugsun þar sem nemendur hagnýta þekkingu sína í raunhæfum verkefnum. Sjálfbærni og fagleg vinnubrögð eru fléttuð inn í námið með áherslu á skynsamlega nýtingu efnis og varanlegar lausnir. Öryggi er ætíð í forgrunni til að tryggja heilbrigði og velferð í vinnuumhverfinu. Lýðræði og mannréttindi birtast í því að ríkt samráð er haft við nemendur; þeim er tryggt rými til að veita ábendingar, eiga uppbyggilegt samtal við kennara um tímasetningar á verkefnum og prófum. Loks er jafnrétti lagt til grundvallar í öllu starfi, þar sem öllum eru tryggð jöfn tækifæri til að dafna og eflast sem fagaðilar í hvetjandi námsumhverfi.