RAST2RB05 - Raflagnastaðall
Undanfari : ?Óákveðið
Í boði
: Haust
Lýsing
Nemendur kynnist stöðlum og reglugerðum um raforkuvirki. Viti hvernig ákvæðum reglugerða er framfylgt og þekki öryggisreglur. Þekki helstu tengimáta kerfa, álagsvarnir, lekastraumsvarnir og frágang jarðbindinga. Nemendur þekki ÍST 200-2006 og geti nýtt hann til að sækja sér upplýsingar um reglur og frágang.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- slysahættu í vinnuumhverfi rafiðnaðarmanna og helstu öryggisráðstöfunum gegn henni
- raforkukerfi og rafbúnaði í íslenskum skipum
- almennum kröfum í byggingarreglugerð til raflagna og rafbúnaðar í mannvirkjum
- magni, gerð og staðsetningu á rafbúnaði í raflögnum fyrir íbúðarhúsnæði
- tengingum neysluveitna við lágspennudreifikerfi rafveitna
- fyrirkomulagi og frágangi á mælitækjum fyrir raforkunotkun
- reglugerð um rafmagnsöryggismál
- grundvallarreglum um raflagnir bygginga
- skilgreiningum íðorða um öryggi raflagna
- mismunandi gerðum dreifikerfa og almennum eiginleikum raflagna í byggingum
- helstu varnaraðgerðum gegn raflosti, hitaáraun, yfirstraum og spennutruflun
- vali og uppsetningu á raflögnum og búnaði þeirra
- sannprófun á öryggi raflagna í byggingum
- kröfum til sérstakra lagna eða staða
- sérákvæðum vegna staðsetningar virkja
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- leita sér upplýsinga í staðli
- velja búnað fyrir neysluveitur
- teikna og leggja upp almenna lögn fyrir heimili og smærri fyrirtæki
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- ráðleggja um efni og búnað skv staðli
- tengja rafmagnstöflu skv staðli
- leggja rafmagn við mismunandi aðstæður skv staðli
Grunnþættir menntunar
Í þessum áfanga er unnið markvisst að því að efla faglæsi nemenda á táknkerfi, teikningar og tæknilegar upplýsingar. Lögð er rík áhersla á sköpun og lausnamiðaða hugsun þar sem nemendur hagnýta þekkingu sína í raunhæfum verkefnum. Sjálfbærni og fagleg vinnubrögð eru fléttuð inn í námið með áherslu á skynsamlega nýtingu efnis og varanlegar lausnir. Öryggi er ætíð í forgrunni til að tryggja heilbrigði og velferð í vinnuumhverfinu. Lýðræði og mannréttindi birtast í því að ríkt samráð er haft við nemendur; þeim er tryggt rými til að veita ábendingar, eiga uppbyggilegt samtal við kennara um tímasetningar á verkefnum og prófum. Loks er jafnrétti lagt til grundvallar í öllu starfi, þar sem öllum eru tryggð jöfn tækifæri til að dafna og eflast sem fagaðilar í hvetjandi námsumhverfi.