RAFM1GA05 - Rafmagnsfræði 1

Undanfari : Enginn
Í boði : Haust

Lýsing

Farið er í helstu hugtök og lögmál rafmagnsfræði jafnstraums. Lögð er áhersla á að nemendur læri að nýta sér þessi lögmál við reikninga og gerðar prófanir á þeim með mælingum í jafnstraumsrásum. Farið er yfir mismunandi gerðir spennugjafa auk þess sem nemendur eiga að þekkja helstu teiknitákn í einföldum jafnstraumsrásum.


Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • helstu hugtökum, s.s. straumi, spennuog viðnámi
  • teiknitáknum fyrir mæla, spennugjafa og ýmsar gerðir viðnáma
  • helstu lögmálum, s.s. Ohms- Kirkhoffs- og afllögmáli
  • helstu forskeytum eininga, s.s. milli, míkró, nanó o.s.frv.


Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • framkvæma reikninga í einföldum jafnstraumsrásum
  • teikna einfaldar jafnstraumsrásir
  • nota fjölsviðsmæli
  • tengja einfaldar jafnstraumsrásir


Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • tengja einfaldar jafnstraumsrásir eftir teikningu og framkvæma mælingar á þeim
  • reikna einfaldar jafnstraumsrásir og sannprófa niðurstöður með notkun lögmála og/eða mælingum

 

Grunnþættir menntunar

Í þessum áfanga er unnið markvisst að því að efla faglæsi nemenda á táknkerfi, teikningar og tæknilegar upplýsingar. Lögð er rík áhersla á sköpun og lausnamiðaða hugsun þar sem nemendur hagnýta þekkingu sína í raunhæfum verkefnum. Sjálfbærni og fagleg vinnubrögð eru fléttuð inn í námið með áherslu á skynsamlega nýtingu efnis og varanlegar lausnir. Öryggi er ætíð í forgrunni til að tryggja heilbrigði og velferð í vinnuumhverfinu. Lýðræði og mannréttindi birtast í því að ríkt samráð er haft við nemendur; þeim er tryggt rými til að veita ábendingar, eiga uppbyggilegt samtal við kennara um tímasetningar á verkefnum og prófum. Loks er jafnrétti lagt til grundvallar í öllu starfi, þar sem öllum eru tryggð jöfn tækifæri til að dafna og eflast sem fagaðilar í hvetjandi námsumhverfi.