Lýsing
Fjallað er um framleiðslu rafmagns og mismunandi gerðir flutningskerfa. Farið er í öryggismál, hvernig á að haga sér við hinar ýmsu aðsæður. Nemendur læra að nýta sér reglur og staðla við lagnir. Farið verður í mismunandi gerðir rofa, lagnir íbúðarhúsa og greinatöflur tengdar. Helstu heimilistæki eru kynnt og orkunotkun þeirra skoðuð. Nemendur læra að velja leiðara miðað við orkunotkun og velja varbúnað við hæfi.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- slysahættum sem eru á vinnu við rafmagn á vinnustöðum
- framleiðslu raforku og helstu flutningsleiðum til notenda
- utanaðkomandi aðstæðum á raflagnir eins og raka og varma
- öryggis og reglugeðarákvæðum er varða raflagnir og varnaraðferðir
- helstu heimilistækjum og straumþörf þeirra
- mikilvægi fagmannlegra vinnubragða
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- tengja ýmsa rofa og búnað sem tilheyra minni veitum
- forðast hættur bæði í vinnu við rafmagn og umgengni á vinnustöðum
- draga leiðara í rör
- skipuleggja starf sitt og beita faglegum vinnubrögðum
- tengja helstu rofa og tengla í minni veitum
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- gera sér grein fyrir hættum sem leynast við vinnu með rafmagn og verkfæri
- gera sér grein fyrir orkunotkun í heimahúsum og velja búnað í samræmi við hana
- velja raflagna efni í minni veitur
- leggja raflagnir og tengja í minni veitur
Grunnþættir menntunar
Í þessum áfanga er unnið markvisst að því að efla faglæsi nemenda á táknkerfi, teikningar og tæknilegar upplýsingar. Lögð er rík áhersla á sköpun og lausnamiðaða hugsun þar sem nemendur hagnýta þekkingu sína í raunhæfum verkefnum. Sjálfbærni og fagleg vinnubrögð eru fléttuð inn í námið með áherslu á skynsamlega nýtingu efnis og varanlegar lausnir. Öryggi er ætíð í forgrunni til að tryggja heilbrigði og velferð í vinnuumhverfinu. Lýðræði og mannréttindi birtast í því að ríkt samráð er haft við nemendur; þeim er tryggt rými til að veita ábendingar, eiga uppbyggilegt samtal við kennara um tímasetningar á verkefnum og prófum. Loks er jafnrétti lagt til grundvallar í öllu starfi, þar sem öllum eru tryggð jöfn tækifæri til að dafna og eflast sem fagaðilar í hvetjandi námsumhverfi.