Lýsing
Þrívíð verkefni verða unnin frá hugmynd til útfærslu. Leitast er við að dýpka skilning nemenda á meginatriðum þrívíðrar myndbyggingar um leið og næmi fyrir mismunandi eiginleikum efna er eflt. Hönnunarsagan skoðuð í tengslum við verkefnin. Þjálfun í þeirri skissu- og hugmyndavinnu sem öll myndræn sköpun byggist á, hvort sem um er að ræða hönnun eða frjálsa myndlist. Í áfanganum er unnið með grunnforsendum tvívíðrar myndbyggingar og þrívíðrar hönnunar. Fjölbreyttar æfingar eru gerðar til að kanna myndflötinn, skoðað hvernig form og hlutföll hafa áhrif á jafnvægi hans og áhersla breytist eftir því hvernig lína og form skipta fletinum upp. Unnið er með hugtök eins og hrynjanda, jafnvægi og ójafnvægi, léttleika og þunga bæði í rými og í tvívíðum verkum. Einnig er kannað með endurtekningu hvernig hægt er að byggja upp mynstur á fleti og kenningar hönnuðarins William Morris kannaðar í því sambandi. Einnig er módernisminn í lista- hönnunar og byggingarlistasögu lagður til grundvallar verkefnum. Verkefnin þróast frá tvívíðri formfræði yfir í þrívídd og niðurstöður tvívíðra æfinga nýtast sem grunnur að frekari könnunum á formi og hlutföllum í rými. Nemendur læra meginatriði myndbyggingar í rými og þróa hugmyndir sínar áfram með tilliti til þess efniviðar sem við á hverju sinni. Að lokum vinna nemendur tillögur að einföldum hönnunarverkefnum eða skúlptúrum. Í tvívíðum æfingum er unnið með óhlutbundin form, svartan lit á hvítt og í þrívíðum verkefnum er byggt úr einföldum efnum, pappa, við og vír.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- hugtökum eins og jákvætt/neikvætt rými
- vægi forma og hlutfalla í myndbyggingu
- grunnforsendum myndbyggingar í tvívíðum og þrívíðum verkum
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- nota á meðvitaðan hátt jákvæð og neikvæð form í myndbyggingu
- yfirfæra niðurstöðu kannana sinna úr tvívídd yfir í þrívídd
- geta byggt upp einföld verk sem byggist á virkni í þrívídd
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- túlka hugmyndir með beitingu forma og hlutfalla í mynd
- þekkja áhrif línu og flata í myndbyggingu
- kynna niðurstöður sínar á fjölbreyttan hátt
- taka á virkan hátt þátt í umræðu um verkefni sín og annarra nemenda
Grunnþættir menntunar
Listgreinalæsi er hæfni til að skilja, skapa, meta og tjá sig í gengum listir eins og tónlist, myndlist, leiklist og dans. Það felur í sér að túlka listir og nota skapandi tjáningu.
Sjálfbærni í listgreinum felst í að skapa og vinna með efni og hugmyndir á ábyrgan hátt með tilliti til umhverfis, samfélags og menningar.
Heilbrigði og velferð í listgreinum felst í að efla líðan, sjálfstraust og tjáningu með skapandi vinnu og þátttöku í listum.
Lýðræði og mannréttindi í listgreinum felast í að allir fái að tjá skoðanir sínar, virða aðrar og taka þátt í skapandi starfi á jafnréttisgrundvelli.
Jafnrétti í listgreinum felst í að allir hafi sömu tækifæri til þátttöku, tjáningar og sköpunar óháð kyni, uppruna eða getu.
Sköpun í listgreinum felst í að sýna frumkvæði, nota hugmyndaflug, skapa nýjar hugmyndir og tjá sig á persónulegan og skapandi hátt.