MYNL3LO10 - Myndlist - Lokaverkefni

Undanfari : MYNL3LM05 og MYNL3MÁ05
Í boði : Alltaf

Lýsing

Í byrjun vinna nemendur alls kyns skissur og teikningar með mismunandi aðferðum undir handleiðslu kennara. Nemendur kynna sér verk mismunandi listamanna sem vinna með allar þær tækniaðferðir sem nemendur eru búnir að læra. Þetta gera þeir bæði með heimsóknum til listamanna og með því að skoða verk þeirra í bókum og á netinu. Í kjölfarið ákveður nemandi þema eða hugmynd lokaverkefni síns. Nemendur gera skriflega verkáætlun með lýsingu á framkvæmd, forsendum fyrir vali á verkefni, og hvaða hugmyndir eru að baki verkinu. Þeir halda dagbók þar sem þeir skrá allt vinnuferlið og hugmyndir sem koma upp á vinnutímanum. Nemendur vinna sjálfstætt en eiga að notfæra sér leiðsögn kennaranna í öllu ferlinu til að ræða um hugmyndir og útfærslu verksins. Nemendur skipuleggja lokasýningu í samráði við kennara.

Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • hvernig vinna á listaverk alveg frá grunnhugmynd og til lokaútfærslu
  • hvernig setja á upp samsýningu
  • hvernig ferilmappa skal líta út
  • hvernig vinnuferlið er skrásett og útskýrt skilmerkilega

Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • vinna fullhugsað listaverk frá hugmynd til fullunnis verks , kynna það og setja á sýningu
  • setja eigin verk og hugmyndir saman í persónulega ferilmöppu
  • setja upp myndlistarsýningu ásamt öðrum

Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • tileinka sér sjálfstæð, fagleg og skapandi vinnubrögð sem metið er með verkefnum

Grunnþættir menntunar

Listgreinalæsi er hæfni til að skilja, skapa, meta og tjá sig í gengum listir eins og tónlist, myndlist, leiklist og dans. Það felur í sér að túlka listir og nota skapandi tjáningu.

Sjálfbærni í listgreinum felst í að skapa og vinna með efni og hugmyndir á ábyrgan hátt með tilliti til umhverfis, samfélags og menningar.

Heilbrigði og velferð í listgreinum felst í að efla líðan, sjálfstraust og tjáningu með skapandi vinnu og þátttöku í listum.

Lýðræði og mannréttindi í listgreinum felast í að allir fái að tjá skoðanir sínar, virða aðrar og taka þátt í skapandi starfi á jafnréttisgrundvelli.

Jafnrétti í listgreinum felst í að allir hafi sömu tækifæri til þátttöku, tjáningar og sköpunar óháð kyni, uppruna eða getu.

Sköpun í listgreinum felst í að sýna frumkvæði, nota hugmyndaflug, skapa nýjar hugmyndir og tjá sig á persónulegan og skapandi hátt.