Lýsing
Markvissar tilraunir í blöndun lita: Mismunandi blöndunarþáttur lita kannaður, hvernig litur breytist út frá breytingum á tóni, blæ eða ljósmagni. Litgreining á jarðlitum. Skoðað hvernig litur breytist eftir mismunandi samhengi. Tilraunir með litalampa. Blöndun lita með ljósi og skuggavarp þar sem andstæður litur birtist í skugga. Samspil tónlistar og litar skoðuð. Túlkun á lit eftir persónulegri upplifun.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- kenningum/lögmálum litafræðinnar; litahringnum, andstæðum litum, heitum og köldum litum (Johannes Itten)
- litgreiningu; greina liti og vita hvaða liti þarf til að blanda ákveðna liti úr umhverfinu
- ljósi og skugga, þ.e. ljósi í lit og virkni þess í veruleikanum þar sem andstæðir litir birtast í skugga
- áhrifum tónlistar á skynjun lita og forma (Vassily Vassilyevich Kandinsky)
- blæbrigðum litar þegar hann við fyrstu sýn virðist einn litur en er svo margir við nánari skoðun
- einlit (monochrome), að einn litur getur haldist sami litur þó svo að birtumagn hans aukist eða minnki
- myndgreiningarforriti (Adobe kuler) og notkun þess við litgreiningu mynda í tölvum áhrifum litar á rýmiskennd á tvívíðum fleti
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- beita lögmálum litafræðinnar við blöndun lita
- finna og greina liti í umhverfinu
- sjá andstæða liti í skuggum
- nota ljósmyndatækni við að taka myndir af skuggum
- framkvæma tilraunir og setja þær fram á frambærilegan og persónulegan hátt
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- geta blandað hvern þann lit sem hann finnur í umhverfi sínu
- nýta sér lögmál andstæðra lita; hvernig þeir vinna saman og hafa örvandi áhrif á virkni hver annars
- nýta áhrif litar á myndbyggingu og áhrif á rýmiskennd
- geta greint mismunandi litbrigði í einföldum lit
- nota myndavél til þess að mynda virkni andstæðra lita eftir mismunandi ljósi
- geta nýtt sér áhrif tónlistar á listsköpun sína
Grunnþættir menntunar
Listgreinalæsi er hæfni til að skilja, skapa, meta og tjá sig í gengum listir eins og tónlist, myndlist, leiklist og dans. Það felur í sér að túlka listir og nota skapandi tjáningu.
Sjálfbærni í listgreinum felst í að skapa og vinna með efni og hugmyndir á ábyrgan hátt með tilliti til umhverfis, samfélags og menningar.
Heilbrigði og velferð í listgreinum felst í að efla líðan, sjálfstraust og tjáningu með skapandi vinnu og þátttöku í listum.
Lýðræði og mannréttindi í listgreinum felast í að allir fái að tjá skoðanir sínar, virða aðrar og taka þátt í skapandi starfi á jafnréttisgrundvelli.
Jafnrétti í listgreinum felst í að allir hafi sömu tækifæri til þátttöku, tjáningar og sköpunar óháð kyni, uppruna eða getu.
Sköpun í listgreinum felst í að sýna frumkvæði, nota hugmyndaflug, skapa nýjar hugmyndir og tjá sig á persónulegan og skapandi hátt.