Lýsing
- Jafnlínuteikning. Frumformin teiknuð í þrívídd og skyggð. Síðan eru teiknuð fleiri form í þrívídd, tekið út úr og bætt við og skyggt
- Fríhendisteikning. Hlutateikning eftir fyrirmyndum
- Fjarvídd. Undirstöðuatriði fjarvíddar; Gerðar eru æfingar og tveggja- og þriggja hvarfpunkta myndir teiknaðar
- Modelteikning. Æfingar og þjálfun í að teikna mannslíkamann í réttum hlutföllum
- Teikniæfingar hvers kyns
- Skissubókarvinna. Nemendur fá ákveðin heimaverkefni og rannsóknarverkefni sem þeir eiga að leysa í skissubók og vinna líka frjálsa myndsköpun
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- að skoða hluti og umhverfi í þrívídd og fjarvídd
- að kynna sér listir og menningu í nútímanum og í mannkynssögunni
- hvernig hægt er að yfirfæra þekkingu sína og leikni
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- teikna form og hluti í þrívídd
- að beita blýanti til að ná fram fjölbreytileik í línu og skyggingu
- að beita aðferðum jafnlínuteikningar
- að horfa og teikna
- vinna sjálfstætt í rannsóknarvinnu tengdri myndlist
- að teikna mannslíkamann í réttum hlutföllum
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- tjá sig á myndrænan hátt
- efla athygli og gagnrýna hugsun
- efla frumkvæði og sköpun
- njóta listar og menningar
Grunnþættir menntunar
Listgreinalæsi er hæfni til að skilja, skapa, meta og tjá sig í gengum listir eins og tónlist, myndlist, leiklist og dans. Það felur í sér að túlka listir og nota skapandi tjáningu.
Sjálfbærni í listgreinum felst í að skapa og vinna með efni og hugmyndir á ábyrgan hátt með tilliti til umhverfis, samfélags og menningar.
Heilbrigði og velferð í listgreinum felst í að efla líðan, sjálfstraust og tjáningu með skapandi vinnu og þátttöku í listum.
Lýðræði og mannréttindi í listgreinum felast í að allir fái að tjá skoðanir sínar, virða aðrar og taka þátt í skapandi starfi á jafnréttisgrundvelli.
Jafnrétti í listgreinum felst í að allir hafi sömu tækifæri til þátttöku, tjáningar og sköpunar óháð kyni, uppruna eða getu.
Sköpun í listgreinum felst í að sýna frumkvæði, nota hugmyndaflug, skapa nýjar hugmyndir og tjá sig á persónulegan og skapandi hátt.