MATR2GR05 - Matreiðsla - Grænmetisfæði og vegan matur

Undanfari : Enginn
Í boði : Alltaf

Lýsing

Kynnast vegan mat og almennu grænmetisfæði með að prófa sig áfram við smökkun, bökun og eldun á fjölbreyttri matargerð innan sviðsins. Stuttlega farið yfir sögu og upphaf veganismans, grænmetisfæðu, hráfæðis og hægeldunar ásamt umræðum um orðræðuna í samfélaginu og breytingu á henni í gegnum tíðina. Rætt um kauphegðun út frá leiðandi og villandi auglýsingum og fyrirsögnum hagsmunaaðila í matvælaiðnaðnum. Geta borið kennsl á næringarþörf mannslíkamans og hvernig sé hægt að fylla þá þörf á grænmetisfæði.

Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • mikilvægi hreinlætis við meðhöndlun matvæla
  • viðeigandi verklagi við matargerð
  • hvernig hægt sé að fullnýta næringarefni fæðunnar
  • mikilvægi hollrar og fjölbreyttrar fæðu
  • hvaða fjölbreyttu matvæli þau geti nýtt til að ná yfir næringarþörf líkamans
  • hvaða fjölbreyttu matvæli sé hægt að nýta í stað kjöts og dýraafurða fyrir aðrar sakir (áferð, ofl.)
  • orðræðu, sögu, áróðri og hagsmunaárekstrum í gegnum tíðina innan matvælaiðnaðarins sem áhrifavald á matarmenningu í samfélaginu
  • bera kennsl á, greina og varast helstu brellur sem notaðar eru í auglýsingum og fyrirsögnum og hafa áhrif á kauphegðun í samfélaginu

Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • útbúa fjölbreytta næringaríka máltíð bæði innan kennslustundar og á milli kennslustunda
  • forðast einhæft matarræði
  • velja og fylgja eftir næringaríkum uppskriftum
  • beita réttu verklagi til að viðhalda næringarefnum fæðunnar við eldun
  • gæta hreinlætis við matargerð

Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • útbúa fjölbreytta næringaríka máltíð bæði innan kennslustundar og á milli kennslustunda
  • forðast einhæft matarræði
  • velja og fylgja eftir næringaríkum uppskriftum
  • beita réttu verklagi til að viðhalda næringarefnum fæðunnar við eldun
  • gæta hreinlætis við matargerð

Grunnþættir menntunar

Læsi í matreiðslu felur í sér að nemendur læri að lesa í uppskriftir, hráefni, næringargildi og matargerðarferli. Þeir þjálfast í að skilja fagleg vinnubrögð í eldhúsi og nota fjölbreyttar aðferðir við matreiðslu. Nemendur þróa hæfni til að miðla og framkvæma hugmyndir sínar á skapandi hátt í matargerð.

Sjálfbærni í matreiðslu snýst um að nemendur læri að velja hráefni á ábyrgan hátt og draga úr matarsóun. Áhersla er lögð á nýtingu, endurnýtingu og umhverfisvæna matargerð. Nemendur kynnast mikilvægi þess að taka upplýstar ákvarðanir um neyslu og áhrif matar á umhverfi og samfélag.

Heilbrigði og velferð felur í sér að nemendur læri um hollan mat, næringu og öryggi í eldhúsi. Lögð er áhersla á hreinlæti, góða líkamsbeitingu og örugga vinnuhætti. Nemendur þróa skilning í tengslum við mataræði, heilsu og vellíðan.

Lýðræði og mannréttindi í matreiðslu felast í samvinnu, virðingu fyrir ólíkum hugmyndum og ábyrgð í hópvinnu. Nemendur læra að taka þátt í sameiginlegum ákvörðunum og virða fjölbreytileika í matarvenjum og menningu.

Jafnrétti snýst um að allir nemendur hafi jöfn tækifæri til að læra í matreiðslu óháð kyni, bakgrunni eða stöðu. Lögð er áhersla á fjölbreytileika í matarhefðum og að allir fái að tjá sig og læra á eigin forsendum.

Sköpun í matreiðslu felur í sér að nemendur þrói hugmyndir og lausnir í matargerð með frumleika og virkja sköpunargleði. Þeir vinna með hráefni á skapandi hátt, læra af mistökum og þróa eigin stíl í eldhúsinu frá hugmynd að fullunninni máltíð.