LÍFF3ÖR05 - Líffræði - Örverufræði
Undanfari : Líffræðiáfangi á 2. þrepi
Í boði
: Alltaf
Lýsing
Í áfanganum er farið yfir grunnatriði örverufræði og staða örverufræðinnar innan náttúrufræðinnar skoðuð. Fjallað er um flokkun örvera sem og lífsstarfsemi eins og efnaskipti, æxlun og dreifingu. Nemandinn lærir um mikilvægi örvera í náttúrulegum vistkerfum, í iðnaði sem og skemmdir og sjúkdóma af völdum örvera og varnir gegn þeim. Helstu flokkar baktería eru kynntir. Frumatriði í veirufræði, s.s. staða veira í lífheiminum, gerð, fjölgun, áhrif veira á hýsla, veirusjúkdómar og varnir gegn þeim verða kynnt. Mikilvægi örvera fyrir heilsu manna og leiðir til þess að örva æskilega örveruflóru verða skoðaðar. Nemandinn kynnist vinnubrögðum á rannsóknarstofu og helstu aðferðum í örverurannsóknum og líftækni.
Grunnþættir menntunar
Grunnþættir menntunar fléttast inn í líffræðikennslu á fjölbreyttan hátt. Sjálfbærni birtist í umfjöllun um samspil lífvera og umhverfis, vistkerfi og líffjölbreytileika. Heilbrigði og velferð tengjast þekkingu nemenda á líkamsstarfsemi, örverum, sjúkdómum og forvörnum. Læsi er þjálfað með lestri vísindatexta og gagnrýnu mati á líffræðilegri umfjöllun í fjölmiðlum. Sú vinna styður jafnframt við lýðræðislega þátttöku nemenda í upplýstri umræðu um málefni á borð við bóluefni, erfðatækni, heilsu og umhverfismál.