ÍSAN2ÍF05 - Íslenska sem annað mál - Hagnýtur orðaforði

Undanfari : Samhliða ÍSAN2BS05
Í boði : Alltaf

Lýsing

Áfanginn er ætlaður nemendum sem hafa lokið þremur önnum í íslensku. Áfanginn felur í sér kynningu á námi á framhaldsskólastigi í íslenskum framhaldsskólum. Nemendur hlusta á og lesa texta og leysa verkefni tengd textanum. Hver texti er jafnframt notaður til að æfa tiltekin málfræðiatriði með málfræðiæfingum. Tilgangurinn er að bæta orðaforða og íslenskukunnáttu nemendanna en jafnframt að veita erlendum nemendum innsýn í námsmöguleika á framhaldsskólastigi á Íslandi, bæði til að upplýsa þá um tækifærin en ekki hvað síst til að hvetja þá til frekara náms. Einnig verður farið í hagnýtan orðaforða til að undirbúa nemendur fyrir atvinnulíf og þátttöku í íslensku samfélagi.